Monday, June 12, 2006

Við hjúin áttum yndislegan dag:) Fyrst sváfum við yfir okkur, eða aðallega ég, eftir svefnlausa nóttu. (ég var búin að gleyma því hversu erfitt er að venjast hitanum á nóttinni þegar það byrjar að hitna hérna fyrir alvöru!) Þá nennti ég ekki að druslast í skólann því það var bara einn fyrirlestur eftir. Við ákváðum bara að vera heima og læra. Ég skrapp til læknis og lét athuga blóðþrýstinginn og blóðprósentuna aftur, áður en haldið er utan, og það leit allt vel út. Þegar ég kom tilbaka var haugurinn ekki enn farinn að læra, þannig að við skruppum í göngutúr, borðuðum hádegismat á kaffihúsi hérna nálægt og versluðum í matinn á leiðinni heim. Við fórum líka til grænmetissalans og keyptum ananas, jarðaber og kirsuber! Mmmmm... Svo pöntuðum við miða í sirkus næsta þriðjudag fyrir okkur, Kristinn, Pálínu og Tedda og fórum svo út í garð í sólbað/lestur. Ég er búin að biðja Jákup um að fara með mér í sirkus síðan við kynntumst, og er rosa spennt!:)
Jákup heldur að það sé Ronaldinho í mallanum á mér, þannig að hann heimtar að þjálfunin byrji nú þegar og krefst þess að ég sparki fótbolta á milli í hvert sinn sem hann verður eirðarlaus. Ég lærði að skalla bolta eins og karlmaður í gær:) Í dag reyndi ég að læra að halda bolta á lofti meira en tvisvar, berfætt. Þjálfunin heldur áfram á morgun..;) Ég er samt búin að segja honum að það er verið að vinna í 3 bleikum peysum handa fótboltastráknum hans. Hann segir að þetta sé eintóm herferð á móti honum.
Svo kom Maríanna til okkar og við grilluðum úti í garði og fengum ávexti í eftirrétt. Við sáum einnig "White noise" -endemis vitleysa!
Og já, var ég búin að segja að það er 28 stiga hiti þessa dagana??:-D

6 Comments:

At 1:47 AM, Anonymous Anonymous said...

Ojojojojoj! White noise - viðbjóður! Nú get ég ekki heyrt svona hljóð án þess að fá gæsahúð. Um daginn var ég ein heima með itrip á ipodnum mínum og það slökknaði á því og "vætnojsið" ómaði um alla íbúð. Úúúúúú... :-/

Ég vorkenni þér ekkert útaf hitanum, hehe ;-) Það var meira eins og september en júní hér á Bifröst í dag. Ógeð.

Kv.
Sigrún Ósk

 
At 2:14 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég er líka spennt! Hef ekki farið í sirkus síðan ég var smástelpa og bjó í Svíþjóð, allt of langt síðan síðast!

Heyrðu og svo er erfitt að vorkenna þér mikið, hér heima er búið að vera rigning og rok síðustu daga, haustveður barasta! Er farin að verða ansi spennt að komast í sólina til ykkar :)

 
At 2:14 AM, Anonymous Anonymous said...

HEHHEHE fótboltaundirbúningur... Já fer þetta inn með naflastrengnum? Úr þínum vöðvum og inn um naflastrenginn í vöðva stelpu-stráksins Híhíhíhíhí..

Gott að að blóðþrýstingurinn lítur vel út og allt hitt líka :) Heppin þú að hafa forskot á okkur með bóndabrúnkuna - við þurfum þokkalega að fara í fakebrúnkumeðferð til að redda þessu... össs..

Helga Dröfn

 
At 7:42 AM, Blogger Ásta said...

Ég er að vinna í brúnkunni, enda sé ég ekki fram á að vera mikið úti í sumar:) Nema að fyrstu dagana brann ég, og svo bað ég Jákup um að kaupa sólarvörn.. hann kom heim með faktor 30 og það þarf víst ekki að taka það fram að ég fékk engan lit í gær þrátt fyrir sólardýrkun í 5 tíma:-S

Og ég verð að viðurkenna, þrátt fyrir vitleysuna þá var "white noise" spookí!:)

 
At 9:25 PM, Blogger herborg said...

Veðrið hér er djók!!! Samt ekki fyndið!

 
At 11:14 PM, Blogger Ásta said...

Hehe, það er ágætt að ég verð að vinna í sumar;)

 

Post a Comment

<< Home