Nynne
Ég var að koma úr bíó með vinkonunum. Við sáum Nynne, sem er danska útgáfan af Bridget Jones. Myndin var algjör snilld! En hvernig stendur á því að þegar maður les bókina og aðalsöguhetjan er að kvarta undan offitu og vegur 60kg, að þá vill svo til að aðalsöguhetjan í rauninni er heil 1.78cm á hæð og er að deyja úr hori? Ég var líka búin að ímynda mér að hún væri hálfóheppin í útliti líka, nema hvað gellan er bara stórglæsileg og það vottar ekki fyrir appelsínuhúð á henni þrátt fyrir 30+ ár...? Ég hefði átt að fara í leiklistarnám í staðinn fyrir læknisfræði. Þá gæti maður alla veganna sannfært sjálfan sig um að það sé fjárfesting í framtíð sinni að líta vel út og eyða miklum tíma í ræktinni. Og kaupa fullt fullt af dýrum fötum. Sem ég áttaði mig á að ég hef gert allt of lítið af. Ég get ekki beðið eftir að fara að þéna manneskjupeninga og geta eytt þeim í föt og strípur. Nema að þegar loksins þar að kemur þá er ég orðin of gömul til að eyða aleigunni á barnum og kaupa dýr stígvél. Øøøøøøv.

4 Comments:
Hehe já það verður aldeilis gott að þéna manneskjupeninga og þar sem við verðum sko flottir skvísulæknar með strípur í gellustígvélum en engir gráhærðir histologiukennarar!! þarftu engar áhyggjur að hafa..þú munt alltaf geta keypt þér dýr stígvél og eytt alla vega þónokkru af aleigunni á barnum;p
Hahaha, gott að þið skiljið pælinguna;) Ég verð aldrei gömul! Muhahaha
hæhæ vilti bara senta kveðju til Odense sögnum ykkar
Líf mitt í hnotskurn! Ein flott stígvél eða nýjar gallabuxur og ég geri ekkert annað þann mánuðinn! Eeeeeen það fer að styttast í þetta!:) Ég er einmitt að láta mig dreyma um tekjulindirnar ef ég tek aðstoðarlæknastöðu heima næsta sumar;) hehehe
BTW hvenær má ég koma í heimsókn??:)
Post a Comment
<< Home