Færeyjar
Jákup er farinn til Færeyja og ég er ein heima.
Þess vegna var ég úti að hlaupa, er búin að gera mig sæta og held partý í kvöld!!! Muhahahaha!! Nei djók, ég er ekki svo vond. Það er halloween partý í kvöld í bekknum og við ætlum að hittast nokkrar stelpur heima hjá mér og panta indverskan mat og gera okkur scary á undan;)
Skrítið að vera ein heima. Ég horfði á 4 þætti af House í dag í staðinn fyrir að læra... Kristinn hringdi líka í mig í morgun til að leyfa mér að heyra Tedda urra eins og ljón. En hann var eitthvað feiminn við símann og gretti sig bara í staðinn!;-) Dúllurass.
Ég verð þó bara ein í viku, er svo sjálf að fara í kuldann til Færeyja! Hvernig á ég að pakka fyrir 1,5 mánuð? Þegar ég þarf að hafa tréklossa og lyfjabækur með mér? Og hlý föt sem hafa alls ekki verið notuð hérna ennþá.... Hitastigið er að skríða niður fyrir 10 gráður þessa dagana en er annars búið að vera hlýtt hingað til. Ekki slæmt það! En ég hlakka bara til. Og sérstaklega til að koma heim eftir klinikina!

4 Comments:
Er ekki örugglega internet í færeyjum?? Fær maður ekki örugglega að fylgjast með þér þar? HEHEHEHE :) Gangi þér vel með klinikina og ykkur báðum
Yay! Halloween partý! Fór í svoleiðis um daginn, ógeðslega gaman! :D
Auðvitað horfir maður á House í stað þess að læra! House er snilld!
Rétt að skríða niður fyrir 10 gráður!? Farðu í r*****t! Það er búið að vera frost hérna núna í hálfan mánuð allavega. Snjór og hálka og allt! *fruss*
Bah! Ég þarf að fara atur að elda.
Umm, þetta var semsagt ég...Dóra.
Ég er ekki viss um að Færeyingar séu með rafmagn eða rennandi vatn, en ég skal senda ykkur flöskupóst við tækifæri!:Þ
Það er að verða ansi kalt hérna allt í einu og mér líst ekki á blikuna.... Kannski eins gott að ég sé að fara að hypja mig héðan yfir í vindrassgatið Þórshöfn??:)
Post a Comment
<< Home