Babyboom -again!
Það er aldeilis að mannkyninu fjölgar þessa dagana! Anne vinkona átti strák á fimmtudaginn, sem var barn nr.2, og hún er jafngömul mér og er í læknisfræði. Hann var 4600gr og56cm. Algjör risi!
Svo voru nágrannar okkar, Lene og Simon, að eignast tvíbura í dag, 5 vikum fyrir tímann. Þeir voru ekki nema 2200 og 1530gr þessi grey en mikið hrikalega eru þeir sætir!:) Þeir eru að öllum líkindum eineggja, enda mjög líkir enn sem komið er. Við fórum og kíktum aðeins á þá áðan, en þeir liggja báðir í hitakassa þannig að þetta varð bara stutt heimsókn. Ekkert smá skrítið að upplifa þessar stundir. Á einu andartaki eru þessir vinir okkar orðnir foreldrar tveggja barna og ábyrgðin ólík önnur en fyrr. Mikið finndist mér ég rík ef ég eignaðist svona tvö flott kríli í einu;)
Ég vill samt ekki eignast tvíbura!:-)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home