Pizzzzza! Já takk!
Ooooooooo var að sjá auglýsingu á blog central frá Domino´s megavikunni! Neiiiiii hvað mig langar í eina svoleiðis!!!! Af hverju býr maður í Odense??? Nei ég bara spyr!
Og hver var það sem smitaði mig af svefn-vírus!? Ég bara get ekki drullast á lappir fyrr en k.10.30 á morgnana.... Og ég er ekki að kvarta yfir því að sofa smá yfir mig, takið eftir því. Ég er að sofa hálfan daginn yfir mig! Og kem svo engu í verk af því að ég verð að athuga hver sé á msn, svara öllum mailum, blogga OG taka einn bloggrúnt. Hvers á auma ég að gjalda....
Ég er með harðsperrur eftir blakið í gær og komst að því á fimmtudaginn í yoga að ég er stirðari en spýtukall. Hvað varð um liðleikann úr fimleikunum í gamla daga?? Verð að læra að teygja á eftir hlaupatúrana..... Ég kenni samt líkamsbyggingunni um. Hvernig er hægt að ætlast til að ég ná niður í gólf með beina fætur þegar ég er með svona stuttan kropp???
Bónus dagsins: Er að fara í nudd kl.17 hjá sjúkraþjálfaranema fyrir hálfvirði... ahhhhhhhhh!:)

5 Comments:
hvaða mail ertu að nota, get ekki sent á hotmailið þitt. ertu með eitthvað annað??
svo að ég get sent þér mynd:)
Mynd já takk! Ég er með hotmailið ennþá, astasys@hotmail.com eða asthe02@student.sdu.dk ;)
Ég á ekki heiðurinn af svefnvírusinum. Veit ekki með Lalla, hann er reyndar búinn að vera hálf latur framúr eftir að ég hætti að draga hann á lappir c",)
En ég skil þetta með að svara meilinu, reyna að ná sambandi við helst alla á msn því allt í einu VERÐUR maður að tala við þá, VERÐ að fara blogghring og allt það :)
En helv öfunda ég þig af nuddinu... arrrg verð að fara að skella mér í nudd :)
Gangi þér vel samt að rífa þig upp og útúr húsi :)
Adjö Helga Dröfn
Ég var einmitt að tala við Lalla sama dag og hann lýsti líka yfir öfund yfir nuddinu mínu:) Ég spurði hann auðvitað bara hvort við ættum ekki að skipta! Hann býr með nuddara!!;) Hann var ekki viss um að hann myndi fíla skeggjaðan bólfélaga í staðinn.....
Þið verðið greinilega að nudda hvort annað um helgina!
Post a Comment
<< Home