Sunday, September 25, 2005

Bornholm






Ég var klukkuð af Arndísi og þess vegna fylgja hér eftirfarandi gagnslausar upplýsingar um mig:

1. Mig vantar 2 tennur, eina framtönn og einn jaxl, og er með rammskakka neðrivör vegna þess að ég datt á andlitið úr 1,5m hæð þegar ég var 6 ára og missti allar framtennurnar í einu.

2. Vinkonur mínar stríddu mér á því að vera með grátt hár þegar ég var yngri og þess vegna hef ég þrálátt litað á mér hárið síðan. Ég er þó í verkfalli á hárlitun eins og er, og liturinn er alls ekki eins slæmur og ég hélt:) Ég fæ þó oft að heyra að það fari mér betur að vera dökkhærðari.....

3. Ég get engan veginn sungið, og Dóra systir bað mig alltaf um að steinhalda kjafti þegar ég byrjaði að syngja með útvarpinu í bílnum!

4. Ég kunni ekki einu sinni að sjóða kartöflur fyrr en ég flutti til Odense, en hef öðlast mikinn áhuga á matargerð síðan þá og mér er óhætt að segja að ég er orðin mun betri í að elda en þá;-)

5. Ég veit ekkert betra en að vera á kafi í spennandi bók, og er hundleiðinleg að hafa með í frí vegna þess að ég fylli töskuna mína af bókum og lít helst ekki upp úr þeim fyrr en allt er lesið!

Ég klukka Vigdísi, Dóru og Sigrúnu!

Og þá er það Bornholm:
Við lögðum af stað eftir skóla á miðvikudaginn, 2 svíar, 6 danir og ég. Þetta er 5 klst ferðalag frá Odense með lest og ferju, og við vorum búnar að skipta á milli okkur verkum með nestið eins og sönnum dönum ber. Þegar við komum til Rönne, sem er stærsti bærinn á Bornholm, tók pabbi hennar Anne á móti okkur með tvo bíla, og keyrði okkur heim til þeirra í heimabakað brauð og kaffi og þaðan í sumarbústaðinn þeirra hinu megin á eynni.

Fyrsta kvöldið vorum við afskaplega rólegar, drukkum einn bjór, spjölluðum og fórum að sofa, enda var klukkan orðin 12 þegar við komum upp í bústað.
Fimmtudag fórum við að sjá Hammershus, sem er stærsta kastalarúst í Norður Evrópu. Mega flott.

Þaðan fórum við til Allinge og röltum um, keyptum póstkort og segla á ísskápinn. Merete, Minna, Camilla og ég fórum í fiskbúð og keyptum okkur reyktan laks og reyktan makrel og átum með fingrunum því það á að vera Bornholmsk specialty. Við fórum líka í brjóstsykursgerð og keyptum að sjálfsögðu smá nammi. Þaðan fórum við til Gudhjem og borðuðum pönnukökur og ís og löbbuðum um höfnina. Sá bær er þvílíkt huggulegur og ég verð að koma þangað aftur á ferðamannatíma þegar allt er í fullum gangi. Þaðan löbbuðum við 4 heim, því Anne var bara á einum bíl. Það tók 1,5klst með smá eplastuldi á leiðinni. Trén hreinlega svigna af eplum og perum þarna, þau hafa ekkert við þetta allt að gera sjálf:)
Þetta kvöld borðuðum við allar kanínufóður, af því að tvær af stelpunum eru grænmetisætur, sem mér fannst óætt að mestu leyti...en ég stóð mig bara þeim mun betur í rauðvínsþambi! Við spiluðum mjög skemmtilegt spil og drukkum fullt af bjór þetta kvöld. Ég og Camilla keyptum okkur nefnilega fleiri tegundir af bjór til bjórsmökkunar og stóðum okkur ágætlega í þeim efnum á meðan við skíttöpuðum í þessu blessaða spili sem gekk út á að þekkja alla hina sem best. Sú sem vann var hálf edrú og dóttir sálfræðings. Við Camilla kennum sálfræðikunnáttunni um hversu vel hún las alla aðra, hún sem átti að þekkja okkur minnst! Við rústum þessu næst:)
Föstudagsmorgun byrjaði með þynnku hjá mér eftir 5 tíma svefn, en með sjóbaði hjá flestum hinna. Sumarbústaðurinn lá alveg niður við sjóinn, og það var 20 stiga hiti alla dagana. Algjör bongóblíða! Þegar allir höfðu borðað og sturtast fórum við til Rönne aftur. Við keyrðum 6 í bílnum og 3 hjóluðu þessa 2 tíma yfir eynna. Ég var ansi þreytt en það var gaman að sjá þennan gamla bæ. Það var svo komið að mér, Kamilla og Sandra að hjóla tilbaka seinnipartinn, sem ég var ekkert alltof glöð með sökum þreytu en lét mig þó hafa það. Ég vildi nefnilega frekar taka strætó yfir eynna:) En við lögðum af stað upp og niður brekkur inn í skóg og hjóluðum og hjóluðum og hjóluðum....... Þegar við komumst loksins út úr skóginum (við hjóluðum í 1,5klst inni í miðjum skógi og vissum ekki hvað sneri upp eða niður. Sáum líka fullt af bambi, m.a. eitt dautt sem hafði verið keyrt niður!) vorum við orðnar hundþreyttar, það var að verða dimmt og við vorum búnar að hjóla snarvitlausa leið og enduðum minnst 10km frá sumarbústaðnum. Þá vorum við svo pirraðar að við vorum við það að henda hjólgörmunum út í buskann og öskra! Við urðum hins vegar bara að drífa okkur af stað í rétta átt áður en það varð alveg dimmt, því það eru engir ljósastaurar úti á landi í Danmörku. Við spýttum í lófana og brunuðum af stað. Hefðum við verið 10mín lengur um að koma okkur í hús, þá hefði verið orðið aldimmt og við ekki séð rassinn á sjálfum okkur. Þetta tók 3 tíma. Jey. Við fengum hins vegar góðan mat og vín og spiluðum og spjölluðum þangað til ég fór fyrst í rúmið kl.23. Þvílíkt partyanimal!
Laugardag fórum við í sjóbað, til Svaneke, sáum fullt af keramik, glerblástur og aðra brjóstsykursgerð, miklu flottari en þá fyrri og margt fleira. Þetta var líka svakalega huggulegur bær. Þetta var hinsvegar stuttur dagur af því að við urðum að drífa okkur upp í bústað að þrífa áður en við keyrðum til Rönne aftur til að ná ferjunni.
Ferðin heim var fín. Við borðuðum restar eftir helgina, öllu var pakkað niður og étið á pappadiskum, aftur eins og ekta dönum sæmir. Við spiluðum forseta alla leiðina. En mikið var gott að koma heim til Jákup og sofa í eigin rúmi og þurfa ekki að hlusta á Merete tala upp úr svefni, hroturnar í Linda, eða smjattið í Siv! Hehehe, þvílíkar dömur;)
Þetta var þrælfín ferð í alla staði og við skemmtum okkur konunglega. Meira að segja í hjólreiðatúrnum framan af, þar kepptumst við um að hringja bjöllunni í hvert skipti sem það kom brekka, sem var ósjaldan!

Ég hélt að ég myndi vera dauðþreytt í dag eftir ferðina, og hafði ekki annað á dagskránni en að slappa af og lesa smá. En svo var ég svo hress að við J drifum í að þrífa öll gólf og gera klárt fyrir sófann sem er væntanlegur í vikunni, og svo fórum við Merete út að skokka! Við urðum að brenna einhverju af öllu jukkinu yfir helgina:)

7 Comments:

At 10:45 PM, Anonymous Anonymous said...

Yahoo aims to be the interactive studio of the future
NY TIMES NEWS SERVICE , NEW YORK Sunday, Sep 25, 2005,Page 12 As Discovery orbited the Earth early last month, millions of people visited Yahoo, which runs the most popular news site on the Internet, to see the ...
Hi! You great blog here! Keep it up....

I have a internet marketing guide site. It pretty much covers internet marketing guide related stuff.

Come and check it out if you get time :-)

 
At 1:24 AM, Anonymous Anonymous said...

Hljómar eins og þetta hafi verið frábær ferð hjá ykkur skvísunum.
Ekki eruði enn með gubbusófann góða? Það er þá kominn tími til að þið fáið nýjan :)

 
At 6:23 PM, Blogger herborg said...

Lyder som det har været en rigtig hyggelig tur til Bornholm....

Þú ert nú meiri Daninn Ásta mín:),gat ekki annað en brosað yfir þessari færslu, verkaskipting í nestinu o.s.frv. hehehe

 
At 8:49 PM, Blogger Ásta said...

Við erum nefnilega ekki með gubbusófann lengur:) Við gáfum Annie hann um miðjan ágúst og erum búin að vera sófalaus síðan! Við getum ekki beðið!;)
Ég tók það einmitt fram hvað þessi verkaskipting hefði verið dönsk! Ég tók að sjálfsögðu bara þátt í þessu eins og mér var sagt, en ekki meira en nauðsynlega. Ég keypti kartöflusalatið sem sagt tilbúið úti í búð, en hinar stelpurnar stóðu sveittar í eldhúsinu og bjuggu til heimatilbúnar kjötbollur (nota bene fyrir kjötætur OG grænmetisætur) og bollur og alles! Hehehehe.... Þær hneyksluðust smá yfir letinni, en hei who cares!:)

 
At 12:11 AM, Anonymous Anonymous said...

3. Ég get engan veginn sungið, og Dóra systir bað mig alltaf um að steinhalda kjafti þegar ég byrjaði að syngja með útvarpinu í bílnum!

DID NOT!!

Muhh, been clocked. Ok, það er kominn tími til að skrifa á midnight ghost anyway.

Dórið

 
At 12:41 PM, Blogger Ásta said...

Did to!!!

 
At 1:41 PM, Anonymous Anonymous said...

HEHEHEE

Já sounds like fun. Fyrir utan þynnkuna. Hefði ekki verið til í að taka þátt í henni - en öllu öðru. Gott þetta var gaman. Til hamingju með verðandi sófann :þ

Ha det bra
Helga Dröfn og Lalli frændi

 

Post a Comment

<< Home