Ég fór í kickbox á fimmtudaginn með Merete. Það er ekki í frásögur færandi nema að stúlkan sú er ca.20kg þyngri og sterkari en ég, og í hvert skipti sem ég fer með henni, kem ég lurkum lamin heim og með marbletti um allan líkama! Ég er ansi aum núna.... Skil ekki hvað ég er að spá. En þetta er ansi gaman samt! Spurning um að para sig saman með einhverjum í eigin þyngdarflokki samt sem áður, þeas ef ég ætla að halda áfram að mæta. Bráðum get ég þóst vera fórnarlamb heimilisofbeldis ef ég held þessu áfram!
Fór í bíó í gær á myndina The constant gardener. Veit ekki alveg hvort ég sé að gera þetta viljandi í undirmeðvitundinni, en þetta er að verða að einhverju þema hjá mér. Ég sá myndina Hotel Rwanda um daginn, og báðar myndirnar fjalla um eymdina í Afríku og hversu létt vesturlandabúar taka á málinu, og jafnvel notfæra sér ástandið. Það er ágætt að vera minntur á það öðru hverju hvað maður hefur það gott:) Góð mynd. Eða það fannst mér. J er víst ekki alveg sammála, en hann verður líka alltaf pissed þegar fólk er vont í kvikmyndum. J er hæstánægður með að sjá bara Kill Bill og Van Helsing og álíkar vitleysur.
Minnispunktur: Ekki horfa á Schindlers list með honum!!!
Afmæli í kvöld hjá Pål, og skokk á morgun með Merete (spurning um að maður skelli sér í átak með Kristni bróður og félögum fyrst maður er á fullu hvort eð er!:). Annað kvöld förum við svo heim til David og Stine, ásamt Lene og Simon, til að horfa á myndir frá ferðinni í sumar og borða góðan mat. Huggó.
Í næstu viku fer ég til Bornholm með 9 vinkonum. Við erum búnar að fá lánaðan sumarbústað og ætlum að hjóla um eynna og detta í það í 4 daga! Ég hlakka mikið til! Loksins fær maður að sjá eitthvað landslag hérna í Danmörku:) hehe

2 Comments:
Landslag í DK??? er það til ;) hehehehe ég segi bara góða skemmtun och ha det bra.
Já og góða skemmtun í boxi. Vildi að ég væri svona dugleg.. snökt. Vantar að láta berja mig áfram.
Kveðjur frá Svíþjóð HD
Takk takk! Láttu þig bara hvetjast af framtakinu þeirra Kristins og félaga!:) hahaha, meira en að segja það, ekki satt?
Post a Comment
<< Home