Wednesday, September 21, 2005

Blak

Ég fór í BLAK á mánudaginn. Þar sem ég er að æfa, á sjúkrahúsinu, er blak komið á tímatöfluna eins og allt mögulegt annað og ég lét mig hafa það að fara í einhvern grunnskólann með stelpunum til að spreyta mig. Ég hélt að við værum bara með völl til ráðstöfunar í 1,5 tíma og myndum bara spila eins og við vildum, en......BWAAA....þarna var mættur þjálfari af holdi og blóði, fullt af blóðþyrstum, blakspilandi samnemendum mínum og okkur var svo tilkynnt að við ættum að keppa 8.okt!! Ég hef ss ekki spilað blak síðan í menntó, og þá var markmiðið að forðast boltann og hvað þá að henda sér á eftir boltanum niður á gólf! Fyrir það fyrsta kunni ég enga boltatækni, boltinn rauk bara í einhverja átt ef ég svo mikið sem snerti hann, og í öðru lagi varð mér ljóst að vandamál mitt með að loka alltaf augunum þegar það kemur bolti fljúgandi í áttina að hausnum á mér er ansi óæskilegt í þessum leik.... Ég og boltaíþróttir!
Ég var ss versti spilarinn þennan dag. En hey -það er æfing á hverjum mánudegi!:) Ég er bara ennþá með bláa og fjólubláa handleggi og harðsperrur í rasskinnunum, en þetta var samt mjög gaman. Það er aldrei að vita hvað getur orðið úr þessu;-)

Nú verð ég að pakka. Lestin til Bornholm fer af staðeftir 2 tíma! Jeyjey

2 Comments:

At 6:49 PM, Anonymous Anonymous said...

Góða skemmtun í stelpuferðinni skvís, fáum við svo alla söguna eftir helgi? Óritskoðaða þe?

 
At 6:26 PM, Anonymous Anonymous said...

újeahh góða skemmtun ha!
Hlakka líka til að fá að lesa óritskoðaða eintakið af ferðinni!
Helga Dröfn

 

Post a Comment

<< Home