Ég og Jákup, systir hans og vinkona hennar, fór í afmæli hjá Baldri og Gunnhildi kærustunni hans á laugardaginn. Það er langt síðan ég hef skemmt mér svo vel á djamminu! Ég var líka ansi vel í glasi og dansaði alla nóttina...;) Gaman þegar djamm heppnast vel! Takk fyrir mig;) Ég held svei mér þá að það hafi allir verið að skemmta sé þetta kvöld. Sigrún vinkona var að halda upp á 25 árin á Akranesi, Guðrún mágkona var að halda upp á sitt 25 ára afmæli í Reykjavík og Stebbi Örn átti líka afmæli þetta kvöld! Til hamingju með það öll sömul;) Ég fagnaði fyrir hönd ykkar allra hér í Odense, og leiddist það ekki ónei...
Vaknaði í morgun til að fara í skólann, druslaðist í sturtu og gerði allt klárt, en var allan tímann eitthvað hálf skrítin, gat varla haldið jafnvæginu og svimaði og var hálfóglatt. Það var ekki erfitt að sannfæra sjálfa mig um að þetta væri nógu góð ástæða til að halda sér heima fyrir í dag:) Ég sit því hér í mestu makindum og les Harry Potter og surfa á netinu! -En er ennþá jafnvægislaus.....skrítið.....Kannski var ég fyllri en ég hélt á laugardaginn -eftirköst?!? hmmmmm

3 Comments:
Sukkið á þér, kerla bara buzzed out dögum saman eftir skrall!
:)
Kristinn
Eftir svona rosalegt fillerí er ekki skrítið að það hafi tekið 2 daga að jafna sig ;) ég var líka hálf skrítin á mánudaginn. En þetta var hrikalega skemmtilegt :) gerum þetta aftur bráðlega
Já það þýðir ekki að gera neitt með hálfum hug -allt eða ekkert;) hehe
Við verðum endilega að endurtaka leikinn bráðlega Helena! Þetta var mega gaman! Hvernig fór annars.....? Ég fór heim á undan þér;)
Post a Comment
<< Home