Helgin
Nú er ég loksins að verða eins og ég er vön, er öll að fyllast af orku og langar að fara að drífa mig í ræktina og ná af mér spikinu -einu sinni enn!:-) Mér leið eins og gamalmenni í síðustu viku, alltaf með hita á kvöldin og að leka niður úr syfju og orkuleysi. En þetta er allt að koma sko!
Ég var að koma úr bænum, þar sem ég var inni í Deres að velja nýjar gallabuxur -ókeypis! :) Ég þurfti reyndar að borga 200kall á milli, en það var af því að ég valdi nýjar Miss Sixty buxur í staðinn. Ekki slæmt að borga 200kr fyrir nýjustu tísku! Og þessar koma líka með 2ja ára ábyrgð. Bring it on. Ég er til í að gera þetta á hverju ári:)
Skólinn er byrjaður á fullu og það er allt í goody, ég er búin að vera dugleg að læra, enda nóg sem við þurfum að hafa styr på :) Jákup minn byrjaði í skólanum í dag en er svo að vinna næturvaktir alla helgina og á mánudaginn, þannig að ég verð hálfgerð grasekkja næstu 4 nætur!
Svo var Anna Sigga að tilkynna komu sína til Odense í kvöld, þannig að ég vona að við náum að slúðra margt og mikið yfir helgina.
Á dagskránni um helgina er s.s. lestur, gólfþvottur (sem er heilsdagsvinna á þessu heimili með óslípuðu trégólfi sem þarf að skrúbba og láta þorna vel í friði), leikfimi, og kannski djamm með Önnu Siggu og vinkonu hennar. Ekki slæmt það.

2 Comments:
Takk fyrir frábærar móttökur um helgina Ásta mín :) Ég þarf að fá hjá þér uppskriftina við tækifæri.
Anna Sigga
Takk fyrir komuna Anna Sigga! Ég er sko soldið slow hérna. Ég hef varla kveikt á tölvunni síðan þú komst í heimsókn!:)
Veikindin eru búin, harðsperrur eru komnar í staðinn!:) hehe Alltaf gott að vera með harðsperrur!
Post a Comment
<< Home