Mmmm, var að borða afgangana frá matarboðinu sem við Jákup héldum í gær. Ég mæli með þessum pastarétti: steiktar bitaðar kjúklingabringur, pastaskrúfur, pestó, sólþurrkaðir tómatar og furuhnetur. Öllu blandað saman og parmesanosti stráð yfir. Borið fram með salati og brauði. Við elduðum svo lika lasagne því við vorum svo mörg...
Við buðum David, Stine, Lene og Simon í mat til að skipuleggja og ákveða dagsetningu á för okkar til Íslands og Færeyja í sumar. Við ætlum að vera allt í allt í 3 vikur, 2 á Íslandi og 1 í Færeyjum á Ólafsvökunni. Flugmiðaverðið þessar þrjár ferðir er ekkert grín! Rúmlega 40.000! Eins gott að ferðin verði vel heppnuð.....:)
Ég kem þó aðeins á undan svo ég geti hitt vini og vandamenn áður en ferðalangarnir birtast. Ég er búin að panta miða heim 30.júní, á afmælisdaginn hans pabba, og stefni á að halda upp á 25 ára afmælið mitt um helgina eða helgina þar á eftir! Svona verður maður skipulagður þegar maður býr í Danmörku:) hehehe

9 Comments:
Frábært! Góð tímasetning því þetta er nákvæmlega á sama tíma og við íris verðum á íslandi. Við komum 8 júlí og verðum í 2 vikur. Gaman að það sé á sama tíma :)
Haukur
En gaman, hlakka til að sjá þig og ykkur í sumar :)
Guðrún
En gaman, hlakka til að sjá þig og ykkur í sumar :)
Guðrún
En gaman Haukur! Við verðum endilega að halda eins og eina grillveislu saman og sýna dönunum hvernig maður djammar á íslenskan vís!:) Verst að þið verðið kannski ekki komin heim fyrir afmælið mitt:( En ég er ekki búin að ákveða hvort ég eigi að halda veislu fyrir eða eftir að Jákup og krakkarnir koma.
Ég vona að þú, Guðrún, og Kristinn verðið ekki í burtu allan tímann sem ég er heima:) Hlakka svo til að sjá ykkur öll!!
Svo kemuru við í Køben á heimleiðinni að kíkja á okkur. Vonandi verðum við þá orðin þrjú!
Þið eruð sko meira en velkomin í grillveislu hingað í sumar, þá verður kominn tími á að vinna upp djammskort síðustu ára ;)
Við erum ákveðin í að vera heima á þessum tíma, og meira að segja á leiðinni út til Danmerkur/Svíþjóðar í lok júní svo kannski maður kíki við hjá ykkur ef þið eruð heima þá :)
Guðrún
Ég kem alveg pottþétt við í Köben! Verð auðvitað að sjá litla prinsinn/prinsessuna:)
Þá er það ákveðið Pálína! Grillveisla hjá ykkur:) Við erum heima í júní, ég fer til Íslands 30.! Það væri okkur meira en ánægjan að fá ykkur í heimsókn!!!
Grillveisla! Cool, ég mæti eldhress að vanda. Svo geri ég fastlega ráðfyrir að fá bara sem flesta í heimsókn hingað í sumar, allir velkominir! :)
Haukur
Haukur við kíkjum að sjálfsögðu við þegar við verðum á ferðinni, ekki spurning!
Guðrún
Post a Comment
<< Home