Já, ég er alveg sammála því að nafnið á blogginu mínu passi prýðilega, því ég segi yfirleitt eitthvað óhugsað og kemst greinilega í vandræði þar af leiðandi. En það er nú alls ekki viljandi.
Alla veganna, þá eru síðustu dagar búnir að fara í vinnu, og nú er komin helgi! Jei! Ég komst að því að aðrar gallabuxurnar mínar eru að detta í sundur í klofinu, þannig að ég fékk löglega afsökun til að líta um eftir nýjum buxum:) Ég ætla að skreppa í bæinn í dag og sjá hvort það sé eitthvað eftir á útsölunum, það væri auðvitað bara snilld! Svo byrjar skólinn aftur á mánudaginn. Það er að verða langt síðan ég hef þurft að læra eitthvað af viti, því við erum búin að vera í klinik í 3 mánuði, en ætli ég verði ekki að vekja einhverjar stakar heilafrumur úr löngum dvala fyrir það verkefni!:)

3 Comments:
Ég tapaði mér á útsölu í Jack'n'jones í gær, keypti þrennar gallabuxur, tvenna skó og skyrtu.
Hef annars ekki keypt mér föt síðan Nixon var forseti...
Kristinn
Ég er svo mikill nirfill, ég fór með þessar gallabuxur í Diesel, þar sem ég keypti þær fyrir minna en ári síðan, og sagðist ekki vera sátt við að eyða svona miklum pening í gallabuxur sem væru ónýtar innan árs! Afgreiðsludaman tók því nú bara vel (hmmm, ætli þetta gerist ekki ansi oft...draslbuxur!) og sagðist ætla að senda buxurnar upp á skrifstofu en gerði ráð fyrir að ég fengi nýjar buxur fyrir þær og að ég mætti bara velja annað model í staðinn. Hehehehe! Þannig að ég bíð bara eftir ókeypis buxum.... Þá kannski kaupi ég mér líka fleiri flíkur í stíl. Jei!
Flott hjá þér:) Auðvitað á þetta að endast lengur!
Post a Comment
<< Home