Ég lofa að ég ætla aldrei aftur að vera milliliður fólks í flutningum! Nágrannar okkar voru að flytja úr íbúðinni við hliðinna á okkur og vinir okkar, Simon og Lene ákváðu að leigja íbúðina. Nema hvað, af því að ég er íslensk og er vinkona þeirra Ásgeirs og Guðrúnar, og á auðveldara með að tala við þau en Lene og Simon, þá lentu flest öll samskiptin þeirra á milli á mér. Og leigusalinn -hann fór í frí og kemur ekki aftur fyrr en 7.feb! Þannig að hann hefur ekki verið til staðar til að kíkja á íbúðina og semja við alla aðila um hvenær lyklar eiga að afhendast o.s.frv. Þannig að ég hef þurft að hringja og ákveða með öllum hvenær og hvar lyklarnir eiga að afhendast, og svo er málarinn horfinn með einn lykilinn! Ég skil sko vel að Lene og Simon séu pissed og vilji varla flytja inn fyrr en þriðji lykillinn er fundinn. Þrátt fyrir að málarinn eigi að vera góður vinur leigusalans, þá gæti hann auðveldlega kopierað lykilinn á meðan. Auk þess er það alveg út í hött að þurfa að borga 300þús kr í innborgun fyrir íbúð sem eigandinn er ekki einu sinni búinn að líta á og samþykkja fráganginn á frá fyrri leigjendum, og fá svo ekki heldur alla lyklana. Ég ætla að láta þetta mér að kenningu verða og vera meira á varðbergi næst þegar ég flyt!:)
Svo er ég í þokkabót með nýrnasýkingu eða einhvern andskotann, ekki af því að læknirinn minn vill rannsaka það nánar, og er búin að liggja heima í 3 daga með háan hita og með illt í bakinu, uhuhuhu:( Ég á mjög bágt!:)

6 Comments:
Aei, garmurinn! Svona er alltaf daudi, hata ad vera svona milli steins og sleggju (ef svo ma ad ordi komast).
Ef thad er einhver huggun harmi gegn er eg naer farlama eftir ad hafa ridid her um sveitir Peru (a hesti) i allan dag. En eg get liklega ekki aetlast til ad thu vorkennir mer mikid ut af thvi ;-)
Hafdu thad gott snulla,
Sigrun
Ásta er ekki allt í lagi hjá þér að skrifa þetta á netið. Þetta er nú ekki alveg eins og þú segir. Við getum nú alveg talað við Lene og Simon sjálf og höfum líka gert það, það fór ekki allt í gegnum þig og þú ert ekki ómissandi eins og þú heldur. Stundum gerir þú úlfald úr mýgflugu. Það var enginn sem bað þig að vera einhver "milliliður".
Yfirskriftin á síðunni passar sennilega bara nokkuð vel:"Rugludallur og vitleysingur"
Ooo greyið mitt. Sendu mér bara nýrnasýkinguna, ég skal ganga frá henni.
Voðalega tóku Ásgeir og/eða Guðrún þessu illa. Ég hef sjálfur tekið að mér svona milliliða-dæmi og það getur alveg orðið svolítið bagalegt, oft án þess að neinn eigi sök á, eða að neinn hafi skuldbundið mann til þess. Maður hefur bara þessa tilhneigingu til að taka hlutina inn á sig og láta það stressa mann aðeins upp.
Ekki vera í fýlu allir.
Kristinn bróðir :)
Mér finnst að allir eigi bara að taka eina Zoloft og fá sér einn kaffibolla með, þá leysast svona mál nokkuð vel.
Allavega er það mín reynsla.
:P
Jæja gott fólk! Ég er sko bara búin að vera í vinnunni í allan dag og hefði ekki einu sinni vitað af öllu þessu fjaðrafoki ef ég hefði ekki haft mobilos á mér! Þetta verður sennilega mest-lesna bloggsíða Íslands bráðum samkvæmt sumum!:) hehehe
Þessi pistill var skrifaður og published seint að kvöldi til, algjörlega óritskoðaður og ekki úthugsaður, og átti að skiljast á léttu nótunum, þótt hann hafi vissulega ekki gert það -greinilega:) Þetta átti engan veginn að vera eitthvað diss út í neinn nema húseigandann. Vissulega varð ég eins konar milliliður á tímabili, en það var að miklu leyti sjálfvalið hlutverk, því ég var með bullandi samviskubit yfir því að hafa mælt með íbúðinni við vini mína þegar sjálfur húseigandinn var ekki að standa sig. Auk þess þurfti ég að gefa upp símanúmer á milli manna til að hægt væri að leysa önnur vandamál. Hugsunin á bakvið kvartið um allt vesenið var sem sagt mest það að þurfa að sitja undir öllu rausinu um lyklaleysið og vandræðaganginn með húseigandann.
Að lokum vil ég skora á fólk með skoðanir um málið að kvitta með nafni;)
Post a Comment
<< Home