Desemberbakstur
Ég nennti ekki að læra seinnipartinn! Ég fór því heim, henti af mér töskunni og fór að sækja Kristinu snemma. Við fórum svo í búð og keyptum inn fyrir afmælisveisluna um helgina. Já, litla snúllan verður 2ja ára á þriðjudaginn. Ótrúlegt hvað tímanum líður! Svona leit hún út fyrir ári síðan:D Svo fórum við að baka og búa til konfekt. Gaman!
Á morgun erum við búin að bjóða okkur sjálfum í mat hjá tengdó og ætlum að halda upp á afmælið hennar með þeim. Við komum með köku með okkur, þessa á efstu myndinni. Það eru 3 botnar með kremi á milli undir marsípani:D Vonandi er hún góð!
Á sunnudaginn koma svo vinir hennar Kristinu og foreldrar þeirra og þá verður bökuð ný kaka, bollur og fleira. Alltaf gott að borða, hehe. Það verður líka gaman að fá gesti og vera svolítið saman, því nú fer kennslu að ljúka (næsta föstudag) og þá er daglegum samskiptum okkar foreldranna úr bekknum að mestu lokið. Það verður svolítið skrítið að byrja nýja lífið á næsta ári. Og skrítið að hitta ekki allt þetta fólk á hverjum degi í skólanum. Við erum öll farin að telja niður dagana fram að prófum, og ekki minnst fram að partýinu okkar þann 15.jan! Hehe það verður skondið, það drepast eflaust allir fyrir kl.23 vegna ofkeyrslu síðustu vikna. -En við verðum fleiri en bara bekkjarfélagarnir í afmælinu og við hlökkum líka til að sjá það fólk;) Kristina er alveg sérstaklega spennt fyrir því að hitta Klöru vinkonu sína.

12 Comments:
Heyrðu, þið megið ekki baka allar smákökurnar! Ég vil líka geta bakað eitthvað! :D
Og jeminn eini hvað það er fyndið að sjá þessa ársgömlu mynd. Hún er búin að stækka þvílíkt!
Uuuu...þetta var semsagt ég.
Dórið
Sæta sæta :) Vá hvað hún hefur stækkað á þessu eina ári. Órúlegt alveg, maður er alltaf jafnhissa. Það sést best á börnunum hvað tíminn líður :)
Við Teddi vorum að tala um að Kristina ætti afmæli bráðum og hann fór næstum því að gráta þegar kom í ljós að hann gat ekki komið í afmælisveisluna, hann ætlaði sko að kyssa hana frænku sína og knúsa og syngja fyrir hana afmælissönginn :)
Vonandi verður afmælishelgin frábær - og nammi, mig langar í svona köku!
Dóra: Þú mátt sko alveg baka fleiri smákökur með Kristinu;) Það er líka ennþá til marsipan og núgat í konfektgerð:)
Pálína: Já, ég verð líka hissa í hvert sinn sem ég sé þessar myndir! Vá krúttið hann Teddi:) En það verður þeim mun skemmtilegra að sjá ykkur eftir rúman mánuð:D
Mmm hvad thetta er girnileg kaka og konfektid lika! Ekki minnkar tilhløkkunin vid ad sja thetta. Klara telur nidur dagana fram ad afmæli og sønglar "Kristina ammli". Verdur gaman ad sja ykkur a morgun. Knus Sigga
Umm girnileg kaka! Já það er bara að koma að 2ára afmælinu, gaman að sjá myndina síðan fyrir ári síðan,smá breyting á stúlkunni;)
Góða skemmtun í báðum afmælunum:)
VÁ flott kaka :) efast ekki um að bragðið sé jafn gott!
Já segi eins og hinir - fyndið að sjá myndina frá því fyrir ári síðan :)
Frábær saga af jólatrénu HAHAHA skemmtileg frásögn :þ
Ég hef einu sinni haft grein fyrir jólatré. Þá var ég 6 ára. Þá fékk ég skrilljón pakka auk þess sem við fengum gesti yfir jólin sem varð til þess að það sást ekki í "jólatréð" það var alveg hulið :)
Sagan s.s á bakvið þetta "jólatré" var sú að við vorum nýflutt til Bolungarvíkur. Þegar pabbi mætti á þorláksmessu - eða daginn fyrir - til að kaupa tré þá voru þau öll búin. Hann áttaði sig ekki á því að það var náttúrulega bara takmarkað magn sent vestur. Svo flestir drifu sig um leið og jólatréssalan opnaði svo þeir næðu tré. Við nýflutta aðflutta fólkið vorum grænni en sjálf trén :)
Helga Dröfn
Hehe! Pabbi keypti einmitt síðasta tréð (eða því sem næst) ein jólin, og það var tré án greina;)
Kakan var bara alveg ágæt þó ég segi sjálf frá.
Nú er ísskápurinn fullur af kökuafgöngum, barnið upptjúnað og neitar að fara að sofa og við að fara að læra eftir slukshelgi;)
Myndarskapurinn! Hugguleg kaka og marsipanmetnaður:D
Rosalega er kristina orðin stór. Ég er alltaf ráfandi í tímavillu og finnst hún alltaf vera yngri, eða tíminn líður svo hratt að maður gerir sér enga grein fyrir því að börnin vaxi jan hratt. Vonandi fáum við að sjá hana í eigin persónu fyrr en síðar:)
Ammli! Rokk!
Knús! Stemmari!
Mmmmm kaka!
KT
Já, manni finnst annarra manna börn vaxa svo hratt! Það væri gaman að hittast næst í heimsókn á klakann:)
KT: Takk fyrir það;)
til lukku með litlu skottu:) fékk hún ekki pakkann?:)
Post a Comment
<< Home