Tuesday, December 09, 2008

Snillingarnir við keyptum jólatré á sunnudag. Það var sjálfsafgreiðsla á trjánum og netið til þess að pakka trjánum inn var búið. Við tókum því eitt tré sem var pakkað inn án þess að sjá hvernig það leit út. Hæðin var samt fín, og það leit út fyrir að vera þétt og gott, sem ég legg áherslu á, eftir tréð sem pabbi keypti hérna um árið;) Þegar heim var komið klippti Jákup netið af trénu og -bojng! Tréið dreifði úr sér um hálfa stofuna, og ekki er hún lítil!! Allt jólaskrautið okkar nægir ekki til þess að hylma yfir græna litinn nema að litlum hluta, og litla ljósaserían okkar er ansi vanmáttug gagnvart þessum mikla greinafjölda! Og við sem verðum ekki einu sinni hér á aðfangadag... Nú erum við amk tilbúin fyrir jólin. Gjafir -tjékk. Piparkökur -tjékk. Súkkulaðismákökur -tjékk. Gígantísk jólatré sem skyggir á sjónvarpið -tjékk.

5 Comments:

At 12:27 AM, Blogger herborg said...

oooops, spurning um að splæsa í eina seríu:) ja eða klippa tréð til:)

 
At 8:44 AM, Anonymous Anonymous said...

LOL! Hlakka til ad sja jolatred um helgina...Dugnadur i ykkur ad baka smákøkur;)Gangi ther vel med bollurnar! Knus Sigga

 
At 5:50 PM, Blogger Ásta said...

Hehe þessu verður ekki breytt, enginn tími!

 
At 7:53 PM, Anonymous Anonymous said...

Hahaha þetta minnir mig á christmas vacation þegar hann klippir bandið af trénu og það fer gjörsamlega útum allt:D
Ég fæ nú bara móral við að nenna ekki að baka þegar ég sé að little miss busy er meira að segja búin að baka!

 
At 8:04 PM, Blogger Ásta said...

Iss ég þarf líka að vera með Kristinu inná milli, og þá er tilvalið að baka:) Kareni myndi örugglega finnast gaman að hjálpa til, og amk hjálpa til við að éta afraksturinn -Kristina er mjög dugleg við það!:)

 

Post a Comment

<< Home