Tuesday, December 02, 2008

Jólasnatt

Við erum búin að skreyta, kaupa flest allar jólagjafirnar og ætlum ekki að senda jólakort í ár. Við eigum bara eftir að baka piparkökur og búa til konfekt og þá mega jólin koma:) Það er jólaball í legestuen á morgun og Kristina var ekki lengi að læra að kíkja í jólasokkinn sinn á morgnana til þess að kíkja eftir pakka, þannig að hún er í stífri jólaþjálfun þessa dagana!
Við erum orðin ansi þreytt, og helgin fór alveg með okkur. Við fórum á sitt hvorn julefrokostinn og svo vorum við í köben yfir helgi til þess að halda upp á afmælið hennar Annie. Við fórum í jólatívolí og fórum út að borða. Ég var búin að hlakka svo til að sýna Kristinu tívolí, nema hún svaf það nánast af sér, og vaknaði ekki fyrr en stuttu áður en við þurftum að drífa okkur í lestina heim. Þegar heim kom fór hún beint að sofa og ég rembdist við að læra fram á kvöld en sá eiginlega tvöfalt á meðan. Svo var skóli kl.8 mánudagsmorgun, en við erum vön að mæta kl.9 og tökum því rólega á morgnana. Það var ræs hér kl.6 og allir af stað. Ég reyndi að halda mér vakandi á kaffi framan af, en varð að játa mig sigraða í síðasta tímanum og lokaði bara augunum og svaf af mér allan tímann! Þá gat ég lifað allan seinnipartinn af, þegar ég var að fara yfir garnafræðina með Lina. Hér er lærdómur á dagskránni öll kvöld, en ég er orðin þreytt kl.19, þannig að það verður erfiðara og erfiðara að halda einbeitingunni. Þetta er sem betur fer að verða búið. Mánuður í fyrsta próf.
Í dag þurftum við að eyða deginum í snatt. Áttum fund með bankaráðgjafanum til þess að tilkynna um breytt áform, þar á meðal brúðkaupsplön! Hún átti eiginlega ekkert val greyið en að lána okkur heilan helling fyrir því, og til þess að komast í gegnum síðasta hjallann þangað til við förum að fá einhver laun:) Svo ræddi Jákup við kirkjuna, ég við hárgreiðsludömu og við kokkinn. Við fórum líka í búð og gerðum óskalista fyrir brúðkaupið. Nóg að gera í þessum dúr, en nú megum við eiginlega ekki vera að meiru, og ég vona að það sé komið nóg fram í janúar.

9 Comments:

At 11:16 PM, Anonymous Anonymous said...

Spennó spennó... nóg að gera!

Já þetta er að verða búið - hang in there. Og gangi ykkur vel með lokasprettinn. Skyldirðu sofa í gegnum eigið brúðkaup??? :) Vonandi ekki!

Kv. Helga Dröfn

 
At 1:03 AM, Blogger Sigrún Ósk said...

Sæl mín kæra!

Úff, ég fékk alveg hroll við lærdóms- og þreytulýsingarnar. Rámar óljóst í svona stundir! Þá er nú skárra að fá að minnsta kosti borgað fyrir að þræla sér út ;)

En eins og þú segir, það styttist í að þetta verði búið! Vei, vei, vei!

Við erum enn að spá og spekúlera í hvort við komumst í brulluppið. Veit ekki hvort ég get fengið frí í vinnunni og svo yrði þetta þriðja utanlandsferðin á innan við mánuði. *Gúlp* En það væri brjálað gaman að geta komið. Ekki á hverjum degi sem "elsta" vinkonan giftir sig :)

 
At 1:07 PM, Blogger Ásta said...

Allt klárast að lokum:) Elsku systir mín kemur eftir rúmar 2 vikur og passar frænku sína svo við getum tekið lokasprettinn í lestrinum að kennslu lokinni!
Sigrún: Engin pressa héðan, ég veit að þetta er slæmur tími að bjóða fólki til útlanda! Þið verðið bara að finna út úr því:)

 
At 2:20 PM, Blogger Halldís said...

Byrjuð að drekka kaffi!!! sko mína, dugleg stelpa ;)
Gangi ykkur vel með lesturinn :)

 
At 2:38 PM, Blogger Ásta said...

Cafe latte úr Mathilda kaffivélinni í kantínunni wp19! Miklu betra en allt sem ég hef smakkað (sem er takmarkað, aðallega á næturvöktum á spítalanum, sem segir sitt!)

 
At 6:32 PM, Anonymous Anonymous said...

Noh komin í kaffid;) Tha fer eg ad geta lokkad oni thig latte ur minni vel;)Getur madur nalgast svona oskalista fyrir brudkaupid? Gangi ykkur vel ad lesa...Kv. Sigga

 
At 7:06 PM, Blogger Ásta said...

Áttu svona vél?? Þetta apparat kostar det hvide ud af öjnene! Namm!
Óskalistinn hefur verið uppfærður í Inspiration og hægt er að skoða hann og strika út af í hvaða Inspiration búð í landinu:)

En Sigga, geturðu sent mér bollu uppskriftina ykkar? Þessar sem við fengum í afmælinu hennar Klöru?:) Evt á emailið mitt, astasys@hotmail.com eða hingað, bara það sem er auðveldast!

 
At 1:47 PM, Anonymous Anonymous said...

Þú ert svo dugleg Ásta! Þessi törn fer nú samt betur fer að klárast næstum því bráðum og þá geturu vonandi slakað smá á ... og andað með nefinu;)

 
At 8:50 PM, Anonymous Anonymous said...

Úff ég verð nú bara þreytt af að lesa þetta allt... nú er bara að telja niður dagana í próflok, þá getiði farið að lifa eðlilegu lífi aftur :)

 

Post a Comment

<< Home