Sunday, August 10, 2008

Ein í sveitinni

Ég er búin að ryksuga (eða ryksjúga eins og þau segja hér:), þvo gólf, þvo þvott, vaska upp, lita augabrúnir og fara í bað í dag. Ég er líka búin að horfa á ca 8 Without a trace þætti og tala við dóttur mína í símann í dag. Hún er alsæl með köttunum heima hjá ömmu, og er búin að átta sig á því að hún kemst nær þeim þegar þeir hoppa upp á kommóður og annað ef hún tekur barnaskemilinn með sér þangað og stígur upp á hann. Hún fór í sund með pabba sínum í dag og fór 50 ferðir í rennibrautinni. Ég sakna hennar. Það er leiðinlegt að vera einn með sjálfum sér!

3 Comments:

At 12:10 AM, Anonymous Anonymous said...

HEHE þú saknar þess s.s ekkert að vera barnlaus og laus og liðug?? :)

Já vona að ég geti hitt á ykkur hjá Kaju eða einhverstaðar.

Helga Dröfn

 
At 5:12 PM, Anonymous Anonymous said...

Týpiskt maður heldur stundum að maður þrái að vera einn í smá tíma, en svo gerist það og maður saknar í okkar tilfellum feðginanna svaka mikið!

 
At 8:20 PM, Blogger Ásta said...

Já mér finnst fínt að vera ein heima í 2-3 tíma, ekki heila helgi!:) Svona er maður klikkaður:)

 

Post a Comment

<< Home