Wednesday, August 27, 2008

Klæi klóri klæi

Teddi krúttipútt á afmæli í dag! Húrra!:)

Hér er allt að færast í venjulegar skorður. Kristina er að venjast tímamismuninum og því að byrja aftur hjá dagmömmunni. Við gætum verið búin að læra meira, en það eru svo margir praktískir hlutir sem þarf að gera fyrstu dagana.
Ég fór í flug á sunnudagsmorgun með Kristinu, og í miðju flugi fór ég að finna fyrir kláða á hægra fótlegg. Ég athugaði það þó ekkert fyrr en við vorum lentar, en þá var ég margbitin á kálfanum eftir eitthvað dýr. Næstu þrjár nætur hafa nánast verið svefnlausar vegna kláða, þrátt fyrir mikla þreytu:( Þetta voru sennilega flær af köttunum hennar mömmu, og ég hef aldrei upplifað annan eins kláða! áts...

4 Comments:

At 5:10 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með frænda í gær:)
ARG hræðilegt að fá svona kláða!! knús til ykkar

 
At 12:04 AM, Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir kveðjuna, ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða!

Vonandi er allt að komast í rútínu hjá ykkur og flóabitin hætt að klæja :)

 
At 10:30 AM, Anonymous Anonymous said...

oooohhhh æhhhhh ferlegt að fá kláða, hef þú aldrei verið bitin svo ég viti, en kláði er eitthvað sem ég þekki vel :)

Velkomin í rútínu.is, það er alltaf voða notalegt að komast í rútínuna aftur - þó það taki sinn tíma!

Kv Helga Dröfn

 
At 9:16 PM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir samúðina stelpur! Kláðinn er farinn loksins:)

 

Post a Comment

<< Home