Thursday, August 07, 2008

Ólafsvíkurævintýri að ljúka

Vá hvað sumarið er búið að líða hratt! Síðasta vinnuhelgin mín er framundan og svo skellum við mæðgur okkur til stórborgarinnar að heimsækja ættingja. Það eru búnir að koma margir að heimsækja okkur í sveitina, og við erum í sumarbústaðafílíng alla daga. Við étum á okkur gat af góðum mat og sælgæti og erum að safna í vömb fyrir veturinn:) Allar áætlanir um að fara út að hlaupa daglega og að fara í sund og synda, fóru fyrir bí, af því að það er bara gömul innisundlaug hérna, og ég er búin að vera letihaugur þegar kemur að því fyrra! Við erum hins vegar búin að slá met í nammiáti;)
Jákup og barnið ætla að fara til Rvk á morgun með mömmu, fara í sund og í Kringluna. Jákup ætlar líka að fá að fara í bíó á Batman. Þannig að ég verð kona einsömul um helgina fram á sunnudag. Ég held ég hafi aldrei verið svona lengi frá Kristinu áður:( Sú er í miklum jafnvægisæfingum þessa dagana, æfir sig að hoppa (er mjög skrautlegt að sjá) og bröltir á pabba sínum. Hún elskar ömmu sína út af lífinu og kyssir hana og knúsar á milli þess sem hún fær að finna fyrir skapsveiflunum hennar. Amma fer út á róló tvisvar á dag, rólar og rennir sér með henni. Svo fara þær í bakaríið, kaupa sér kleinu og svala, og labba um bæinn að tína steina.
Það er fyndið hvað maður er alltaf búinn að setja sig í næsta gír mörgum vikum áður en að honum kemur. Nú er ég tilbúin að byrja aftur í skólanum. Nei, mig langar að lesa nokkar bækur í viðbót:)

6 Comments:

At 2:18 PM, Anonymous Anonymous said...

Já, þetta sumar leið eins og hendi væri veifað!

Ótrúlegt alveg :)

Kristinn

 
At 3:16 PM, Anonymous Anonymous said...

Jiminn og ég ætlaði að koma í heimsókn! Það verður víst ekki þessa helgina....
Þið stoppuðuð allt of stutt hér? Ég er í hálfgerðu sjokki! .. hvert fór sumarið?
Helga Dröfn

 
At 5:33 PM, Blogger Ásta said...

Ég kem í næstu viku og er í viku í Rvk, við sjáumst vonandi þá!
Svo erum við mamma og Kristina hérna 21.-23.ágúst. Þá er opið fyrir gestum:)

 
At 11:48 PM, Anonymous Anonymous said...

Er þetta ekki búið að vera góður tími á Ólafsvík?
Nice að fá mikið af fjölskyldu og vinum í heimsókn og svona.....

 
At 1:25 AM, Anonymous Anonymous said...

Þið verðið að koma í heimsókn til mín, þú veist það kæra frænka!!! Annars verður Sylvía Sigga alveg eyðilögð, og ég líka!!!
Kveðja, Kaja frænka.

 
At 3:54 PM, Blogger Ásta said...

Hehe við skulum gera það! Ég hringi og heyri hvenær þið eruð heima:)

 

Post a Comment

<< Home