Tuesday, July 24, 2007

Innkaup og Greenpeace


Kristina Ósk er búin að fá reiðhjólahjálm og stól aftan á hjólið okkar, regnföt og stígvél síðustu daga. Tekur hún sig ekki vel út?:) Við áttuðum okkur á því í fyrradag að þá daga sem annað okkar er að vinna, verður hitt að hjóla með hana til dagmömmunnar (við erum að vinna á suðurjótlandi), og þá urðum við að eiga til regnföt líka! Auk þess krefst dagmamman þess að börnin eigi regnföt. Stígvélin voru þau minnstu sem ég fann, og það er búið að rigna svo mikið í DK síðustu vikur að þetta voru líka einu regnfötin sem ég fann í hennar stærð. Það er ágætt að hún er sætarófa í hverju sem er;-)
Við Dóra og Jákup vorum á röltinu niður göngugötuna í gær og vorum þá stoppuð af Greenpeace starfsmanni sem var að reyna að fá okkur til að styðja málefnið. Við sögðum bara nei en fífluðumst með það eftir á að við hefðum átt að segja henni að við værum Íslendingar og Færeyingur og að við bæði veiddum og borðuðum hvali:) Þegar við Jákup mættum G starfsmanni aftur í dag rauk bara upp úr mér : "vi spiser hvale" hehehe... Ég náði því miður ekki að sjá svipinn á henni, því við vorum komin framhjá henni áður en ég áttaði mig á því hvað ég hafði sagt...
Ég er búin að eyða vibbalega miklum pening í dag!:-S

7 Comments:

At 3:10 AM, Blogger Halldís said...

sætust!

 
At 10:56 AM, Anonymous Anonymous said...

Hahaha vi spiser hvale! þú ert nú alveg met! En já Kristina Ósk gæti kannski sótt um í Green peace í þessum fallega græna regngalla;-)Hún er varla byrjuð að borða hvali:P?

 
At 4:19 PM, Blogger Unknown said...

Vi spiser hvale hahahahahahaha
Þetta hefði ég viljað sjá!
Kristina Ósk er æðisleg:)

 
At 1:51 AM, Anonymous Anonymous said...

Jiminn hvað daman stækkar og hún að fara til dagmömmu - time flies.

HAHAHA þetta með green peace fannst mér alveg milljón bwahahaha. Hefðir samt eiginlega líka átt að segja honum hvaðan þið væruð :)

Hafið það gott og haldið áfram að eyða svona af og til - það er bara svo gott - á meðan á því stendur :)

Helga Dröfn

 
At 1:27 AM, Blogger herborg said...

snilldarmyndir af Kristinu Ósk:) Flott hjá þér að segja að við borðum hvali. Það þarf að segja eitthvað við þetta lið svo það reyni ekki að stoppa mann á hverjum degi. Þau láta þig í friði eftir þetta-vonandi-eða hvað???:)

 
At 2:31 PM, Anonymous Anonymous said...

Brillian, um að gera að hrista aðeins upp í þessu liði! :)

Ásdís

 
At 5:26 PM, Blogger Ásta said...

Hehe, ég hef alla veganna ekki verið trufluð síðan;-)

 

Post a Comment

<< Home