Sunday, July 22, 2007

Í klóm sómalans

Í gær fór ég loksins út að skokka með nýja mp3 spilarann minn og nýju hlaupaskóna (ég hef verið full af afsökunum, t.d. sparkaði ég litlu tánni í ferðatöskuna og var ófær um hlaup í nokkra daga, svo varð ég lasin, og svo fékk ég 8 moskítóbit á fótlegginn og ákvað að ég væri ófær um að hlaupa á bólgnum fótlegg:) . Leiðin sem ég skokka liggur að einum þriðja hluta á einangruðum stíg sem liggur meðfram lestarteinunum. Ég er ekkert rosalega örugg á þessum stíg, hann liggur nefnilega út í Vollsmose, alræmdasta hverfi Danmerkur, og á honum þeysa reglulega röffaralegir innflytjendur á skellihnöðrum. Það hefur þar að auki verið svolítið um rán á svona hlaupastígum í Danmörku, sérstaklega af ipodum og slíku, og ekki síst hefur það komið fyrir að stelpu hefur verið nauðgað (man amk eftir einu slíku atviki, það gerðist kl.10 að morgni í almenningsgarðinum hérna í Odense, hún var úti að skokka)! Allt þetta rennur í gegnum huga mér í hvert sinn sem ég hleyp þarna, og þá getur maður spurt sig: af hverju hleypurðu þarna? Ástæðan er sú að á þessari 5km leið eru bara ein umferðarljós, sem ég sé sem mikinn kost. Þoli ekki að stoppa reglulega á ljósum. En ef ég fer út á kvöldin, þá hleyp ég aðra leið. Nú, en nóg um það. Í gær var ég bara nýlögð af stað, þegar ég hleyp framhjá unglingsstrák frá Sómalíu sem er að labba á stígnum. Eftir smástund tek ég svo eftir því að það er einhver að hlaupa beint fyrir aftan mig. Ég hugsa með mér að þetta hljóti að vera annar skokkari sem tekur fram úr mér eftir smá stund. Þegar hann svo fer framhjá mér slær hann í rassinn á mér!! Ég snarstoppa, sé að þetta er unglingsstrákurinn sem ég skokkaði framhjá rétt áður og segi strax: hvern andskotann ertu að gera?! Hann horfir undan og skokkar áfram. Ég held áfram að hlaupa. Eftir smá stund fer hann aftur að labba og ég hleyp framhjá. Þá segir hann: Fyrirgefið, þetta endurtekur sig ekki. -skömmustulegur á svip. Þá segi ég honum að hypja sig, ég vilji ekki vera nálægt honum. Loksins í þriðja framhjáhlaupi losna ég við hann og held áfram í mínum eigin heimi.
Þetta var svolítið skondið eitt og sér, en séð í samhengi við allt það sem ég hræðist þarna venjulega fannst mér þetta óþægilegt. Ég efast ekki um að ég hefði getað lamið greyið ef hann hefði reynt eitthvað, hann var svo horaður;-) Jákup spurði mig þegar ég kom heim hvort hann ætti að fara og sjá hvort hann væri þarna ennþá? Ég sagði nei....:-)

5 Comments:

At 10:44 PM, Anonymous Anonymous said...

Vó, ég hefði nú orðið pínu smeyk - en ég er líka alger rola. Ætli gaurnum hafi ekki bara litist svona vel á þig og meint þetta sem hrós? ;)

 
At 11:49 AM, Blogger Sigrún Ósk said...

Oj.

En hvernig veistu að hann var frá Sómalíu???

 
At 4:37 PM, Anonymous Anonymous said...

Hmm ég held ég haldi bara áfram að vera löt, fer ekki að hætta á einhverjar flengingar, hehe. Annars dáist ég af þér, þyrfti að vera duglegri að hreyfa mig.

 
At 5:27 PM, Blogger Ásta said...

Hehe, ég tek því bara þannig:)

Ég held bara að hann hafi verið þaðan, mér finnst Sómalar vera nokkuð sérstakir í útliti. En hann getur að sjálfsögðu hafa verið annarar þjóðar kvikindi;-)

Leti lengi lifi!:-)

 
At 3:43 PM, Blogger Unknown said...

Já Vollsmose hefur heldur betur breyst frá því að við bjuggum þar!
En mér finnst þú ansi hugrökk að skokka þarna, ég er alltaf að verða meiri og meiri gunga með aldrinum,myndi aldrei þora að skokka þarna ein.

 

Post a Comment

<< Home