Við Dóra sáum Apocalypto í gærkveldi, og sú mynd er sko ekkert léttmeti. Ég var á taugum alla myndina! Og horfði svo aftur á hana með öðru auganu í dag, á meðan Jákup sá hana, og þá var hún ekki síðri. Mæli með henni.Það á að vera 20 stiga hiti í nótt og við erum strax farin að finna fyrir því. Kristina er svo óróleg, hún er heit og sveitt og sefur illa. Ætli við verðum ekki öll hálf ósofin á morgun. Annars er æðislegt þegar veðrið er gott. Það á að byrja að rigna aftur á næstunni.
Kristina byrjar hjá dagmömmu þann 1.ágúst. Það verður skrítið! Ég hálfkvíði fyrir því að skilja hana eftir, litla barnið mitt, hún er svo lítil ennþá:( En nú verð ég að byrja aftur í skólanum. Við höfum ágúst til að venja hana við dagmömmuna og læra. Jákup er að fara í próf í lok ágúst og ég þarf að skrifa verkefni. Ef ég einhvern tímann kem mér að því:) Mér finnst nefnilega ekki leiðinlegt að lesa skáldsögur þegar ég hef tíma til þess, og er á kafi í nýjum rithöfundi þessa dagana!:-D Og við bíðum spennt eftir Harry Potter bókinni eftir nokkra daga! En annað kvöld er það kvikmyndin. Við Doris ætlum að skreppa í bíó.
Við höfum aðeins verið að túristast upp á síðkastið. Vorum í 2 daga í köben, í tivoli og dýragarðinum og skemmtum okkur konunglega. Í gær skruppum við að skoða Egeskov höll. Hún er rosalega flott, og allur garðurinn í kring. Á fimmtudaginn ætlum við svo að skreppa til Jótlands og fara í Legoland og ljónagarðinn. Gott að Dóra er hérna til að rífa okkur af stað:)

6 Comments:
Já, pældu bara í því hvað þetta hefði verið leiðinlegt sumar ef ég hefði ekki komið! Ha! Ha! :D
Haha! Það er nú alveg ágætt að hafa smá félagsskap;-)
Bah mér fannst hún alveg skíta á sig í restina þessi mynd, allt of mikið Rambó og klisjur eins og að stökkva í fossinn og svona. En uppbygging sögunnar var alls ekki slæm, helvíti skuggalegt þjóðfélag sem þau "heimsóttu" þarna :)
Rock on girlz!
KT
Bannað að skemmileggja!:)
Verð kominn aftur i vinnu a þriðjudag og þá get ég kíkt betur á tölvu fyrir Dóru ef hún hefur ekki keypt neitt ennþá :)
Have fun in Odense,
Kveðja frá klakanum,
Ívar
Meiriháttar! Hún er ekki búin að kaupa neitt;-)
Post a Comment
<< Home