Monday, April 23, 2007


Við fengum góða heimsókn í gær. Vigdís, Eiki og Sóldís María komu til okkar í mat. Ég hafði ekki séð þau í eitt ár, þannig að það var tími til kominn að hittast smá:) Svona kríli stækka mikið á einu ári! Takk fyrir komuna!
Við vorum að koma úr ungbarnasundi. Litla daman fór á kaf 4 sinnum, og það í fyrsta skipti. Einnig er hún búin að velta sér einu sinni yfir á bakið, en það var algjör slembilukka held ég, því hún sýnir engin merki um að ætla að endurtaka leikinn í bráð!:) Og svo er hún orðin ansi ráðrík daman. Jákup kennir mér um, segir að sér hafi verið nær að eignast barn með mér, hún sé með persónuleikann minn! Það er alla veganna greinilegt að uppeldið byrjar Núna. Hvernig fer maður svo að? Spyr sá sem ekkert veit!
Svo ætla ég að monta mig aðeins líka. Ég er að verða frænka! Guðrún Pálína og Kiddi The eru að stækka fjölskylduna um þriðjung!:-) Til lukku með það! Ég spyr þau kannski að þessu um barnauppeldið....alla veganna eru þau ekki búin að fórna höndum enn....hehe.....já eða konungsfjölskylduna bara, það gengur alla veganna ágætlega að búa til börn á þeim bænum.

2 Comments:

At 12:18 AM, Anonymous Anonymous said...

Þið verðið fljót að finna ykkar leið í uppeldinu. Ég held ekki að það sé hægt að gera allt pörfekt. Borgar sig bara að finna sér sinn meðalveg og reyna að gera sem allra best :)
Hvað ætli ég geti svo sem ráðlagt :D

Helga Dröfn

 
At 2:30 AM, Anonymous Anonymous said...

Jeij!! :D

Heyrðu, ég var að gerast sniðug og ég bjó mér til nýtt blogg þar sem ég ætla að skrifa á hverjum degi á dönsku. Bara svona einfalt eitthvað þar sem ég tala um hvað ég gerði yfir daginn eitthvað.

Þú mátt alveg lesa það og kannski leiðrétta ef ég er að segja eitthvað kjánalegt. Ég held ég gæti lært helling af þessu.

http://danish-doro.livejournal.com

Dórið

 

Post a Comment

<< Home