Komin heim!
Við erum komin heim eftir frábært páskafrí á Íslandinu góða, þar sem við skírðum, fórum í þrítugsafmæli hjá Kristni bróður, borðuðum á okkur gat alla daga, hittum góða vini og fjölskyldu.
Töskurnar okkar eru enn fullar af dóti, letin er að drepa okkur! Ég datt í bókalestur, var að klára Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur sem mér fannst mjög góð. Borðaði páskaegg í morgunmat af því að ísskápurinn var tómur. Fór svo á fund upp í skóla sem ég þurfti ekki að mæta á, en það var allt í lagi, ég fékk göngutúr út úr því og barnið svaf. Við litla fjölskyldan stoppuðum svo í Netto á leiðinni heim til þess að fylla kæliskápinn af einhverju ætu -öðru en súkkulaði og appelsíni;)
Ég hélt að ég yrði döpur við það að koma heim í tóma íbúðina, eftir að hafa verið umkringd fjölskyldunni í 10 daga. En ég er bara kát í dag, sólin skín og það er alltaf gott að vera innan um eigin húsgögn. Það gerir það að verkum að ég hugsa að það verði enn erfiðara að flytja til Íslands en ég hef hugsað hingað til. Mikið eigum við eftir að sakna margs! En við höfum tæp 2 ár til þess að njóta þess góða við Danmörku, og svo er ég búin að tilkynna Jákup það að ég fari tvisvar á ári til Dk til þess að njóta alls sem ég sakna eftir að við flytjum!:-) Gott veður, lægra verðlag(ekki síst á kjúkling!), minni sveiflur í sólarbirtu, vinir og kunningjar, hjólatúrar og rólegheit. Það er sko gott að búa í Danmörku!
Við hendum inn myndum í dag. Af nógu er að taka:)

2 Comments:
Ég skil það vel að það hafi verið gott að koma heim, ég er svo heimakær og það er fátt betra en tilfinningin að vera komin HEIM eftir ferðalag. Hvað þá þegar maður er með lítið barn, þá er rútínan góð :)
Svo verðiði að vera dugleg að setja inn myndir, það er svo langt þangað til við sjáum ykkur næst.
Ég skal gera það! Reyndar var ég svo lengi að í gærkveldi að ég held að ég taki mér smá pásu frá að setja inn myndir í nokkra daga;-)
Post a Comment
<< Home