Saturday, April 14, 2007

Sól og blíða

Já veðrið heldur áfram að vera æðislegt. Ykkur finnst svo gaman að heyra um það þarna heima á Frónni:-) hehe Við vorum í sólbaði í dag, og ég var að stikna í gallabuxum!
Ég fór út að hlaupa seinnipartinn með Lene, og leið eins og ofurhetju. Það er svo erfitt að drulla sér af stað og svo líður manni eins og nýrri manneskju á eftir.
Á morgun liggur leiðin í dýragarðinn með nágrönnunum. Við ætlum að ganga þangað og hring í gegnum garðinn, og taka nesti með okkur. Jákup er að fara að keppa í fótbolta og ætlar að hitta okkur þar eftir leikinn. Þá held ég að ég keyri með honum heim aftur í staðinn fyrir að labba:-)

3 Comments:

At 12:42 PM, Anonymous Anonymous said...

Iss, þú færð engin komment á svona montfærslu! Hér er bjart en skítakuldi, við flúðum úr húsdýragarðinum í gær þegar fór að hagla/snjóa á okkur og fórum á McDonalds eins og sönnu white trash hyski sæmir ;)
Svo er alveg bannað að vera dugleg að fara út að skokka, mér finnst að allir eigi að vera jafnlatir og ég :Þ En reyndar er það alveg satt, manni líður alveg ótrúlega vel eftir á, ég ætti kannski að taka þig mig til fyrirmyndar áður en ég verð hnöttóttari?

 
At 12:51 PM, Blogger Ásta said...

hehe, ég hef tekið eftir því:) Þið eruð að springa úr öfund greinilega! Að auki sit ég hér að borða hrikalega hollan hádegismat, nýbúin að skokka:-D
Nú kommentar enginn! hehehe

 
At 11:54 PM, Anonymous Anonymous said...

Hnuss - sól er hérna líka, en skííítakuldi. Ég var reyndar að koma úr eins og hálfstíma göngutúr í kuldanum og í dag keypti ég mér hjálm og hjólalás :) skyldi ég fara að nota það?? Hver veit!! Og þá kannski bara spurning hvenær ef já hehhe

Þetta er annars æðisleg mynd af ykkur mæðgum :)

HD

 

Post a Comment

<< Home