Við Jákup horfðum á myndina Crash í gærkveldi. Okkur þótti hún meiriháttar góð, og vorum sjokkeruð yfir öllum fordómunum! Mikið er ég fegin að búa ekki í Bandaríkjunum! Við horfðum líka á King Kong í fyrradag, henni sofnaði ég yfir:) Við erum í páskafríi og erum búin að njóta þess að gera sem minnst síðustu daga. Fyndið hvað mann hlakkar alltaf til að komast í frí, og svo leiðist manni bara þegar fríið loksins byrjar! En við erum að venjast því að gera ekki neitt, það venst vel:) Nú er fríið líka að verða búið. Þá er best að reyna að nýta síðustu dagana í að koma húsinu í almennilegt horf og þvo gólf osfrv..... Ég er byrjuð að japla á páskaegginu sem mamma og pabbi voru svo sæt að senda okkur (mér hehe) -nói síríus er bestur! Namminamm!
Ég spjallaði við hana ömmu mína í gær, og hún sagðist lesa bloggið mitt á hverjum degi. Nú verð ég að herða mig í skriffinnskunni;) Það er bara svolítið erfitt í Esbjerg, því þar er bara ein tölva fyrir alla aðstoðarlæknana og okkur, og það er slegist um hana.
Að lokum vil ég auglýsa aftur eftir húsnæði fyrir okkur hjúin í sumar. Umtalaða tímabil er 1.júlí til 31.ágúst, hugsanlega til 15.sept ef hægt er. Okkur vantar ekkert stórt, og hugsanleg skipti koma vel til greina ef einhver vill fá íbúðina okkar lánaða í staðinn! Látið fréttina ganga:-) Ég er búin að skella inn auglýsingu á barnaland líka.

6 Comments:
Gleðilega páska skvís! Hér með legg ég síðan fram formlega kvörtun yfir því að þú ert ekki með link á mig hérna!!!Hvursslags eiginlega er þetta!! ;) :P
Hey spyrjum Ívar hvort þíð megið ekki leigja hjallinn hans í sumar, það getur verið að það verði ekkert búið að gera í því máli. :)
KT
Getiði reddað ykkur nauðsynlegum húsgögnum?
HD
gleðilega páska annars :)
HD
Vá. Ég bara veit ekki hver drcor er og hef aldrei séð þessa bloggsíðu áður!:S Hehehe. Gefðu þig fram doktor!
Við erum reyndar búin að nefna þetta við Ívar. Hann ætlaði að hugsa málið. Leiðinlegt kannski að leigja okkur tímabundið til þess eins að þurfa aftur að finna leigjanda í haust.. En það er bara mín pæling. Ég verð himinlifandi ef hann vill leigja okkur!
Við erum helst að leita að íbúð með húsgögnum. Annars reddum við því, ef annað býðst;) Gleðilega páska!
Eftir mikinn spæjaraleik komst ég að því hver drcor er (eða ekki, ég fór inn í gestabókina og þar stóð "Katla farðu að læra!") :-)
Þér verður hér með skellt á link.
Post a Comment
<< Home