Sunday, April 02, 2006

Við hjúin skruppum til Köben um helgina. Á föstudagskvöldinu fórum við út að borða með Annie litlu systur hans Jákups, og fórum svo heim til hennar og horfðum á dvd og höfðum það huggulegt. Laugardeginum eyddum við með litlu systur í Fisketorvet, og svo fór ég að heimsækja Vigdísi, Eika og Sóldísi og við spjölluðum lengi fram eftir (takk fyrir mig!:). Jákup fór að hitta færeyska vini sína á meðan og kom seint heim. Við Annie vorum þó vakandi og vorum að spjalla um stóru málefni lífsins:) Í dag fórum við svo að gefa öndunum rétt hjá kollegíinu hennar Annie og sáum þá skjaldböku liggja þar við vatnið! Við enduðum með að taka hana með okkur og skiluðum henni í gæludýrabúð í næsta nágrenni. Greyið skjaldbakan var greinilega búin að vera lengi úti, var útötuð í fuglaskít og alles..
En nú er ég um það bil að rjúka til Esbjerg, tek lestina kl.22 til að hefja viku nr.2 á taugadeildinni. Jibbícóla!

2 Comments:

At 11:21 AM, Anonymous Anonymous said...

Ja hérna allt að gerast - vorkenni eiginlega ofsalega þessari grey skjaldböku... henni hlýtur að hafa verið kalt! brrrr.... eða hvað? kannski ekki. Hún hefur kannski ekki sagt ykkur neitt um það?

En það styttist í sumarið... gaman gaman.

Hafðu það annars sem allra best og gangi þér vel á taugadeild.

Helgus Drafnus

 
At 2:39 PM, Blogger Ásta said...

Já, greyid litla! Jákup vildi helst taka hana med okkur heim, en mér fannst thad ekki nógu gód hugmynd:)
Já, vorid er loksins ad koma! Og thá er ekki langt thangad til ég kem heim! Jey!
Til hamingju med nýju íbúdina:) Hlakka til ad sjá hana!

 

Post a Comment

<< Home