Páskablogg!
Ég býð spennt eftir páskaegginu mínu og cocoa puffsinu sem því er pakkað inn í! Í gær hringdi dyrabjallan á meðan við lágum ennþá í bælinu, og ég hélt auðvitað að þar væri pósturinn á ferð og bað Jákup um að drífa sig í föt og til dyra.....hann dreif sig greyið eins og hann gat....en þetta voru vottar jehóva!:( Hvers á ég að gjalda?? Súkkulaðisvengdin er farin að segja til sín!
Ég var að enda við að vinna tvær næturvaktir á gjörgæslu og er nú komin í páskafrí! Jibbí! Enda þörf á smá heimaveru svo ég nái að þvo gólf og hengja upp gardínurnar aftur sem gáfu upp öndina á laugaradaginn og hrundu á gólfið....
J er að fara að spila póker! Verð að stoppa!

2 Comments:
Jæja, eruði búin með eggið?
Ég er svo stillt að ég er ekki byrjuð!;) Ég er að hugsa um að byrja samt í kvöld eða á morgun... verð að torga því áður er ég fer aftur til Esbjerg, annars borðar kallinn það bara!
Post a Comment
<< Home