Helgin
Herborg og Bjössi eignuðust yndislega prinsessu í fyrrinótt, þann 19.02.6, og öllum heilsast vel. Ég bíð spennt eftir myndum af henni! Á svona stundum bölva ég vali mínu á háskóla! Ég vildi að ég væri heima svo ég gæti séð litla krílið á meðan hún er ennþá kríli:( Þau stækka svo hratt þessi börn.
Ég tók á móti tveimur börnum í nótt, bæði strákar, á fæðingadeildinni í nótt og fór næstum því að grenja í bæði skiptin:) Mikið var þetta yndislegt! Ég er ekki frá því að ég geti enn hugsað mér að verða kvensjúkdóma- og fæðingalæknir, eins og ég sagði þegar ég byrjaði í náminu! Ég var líka svaka stolt, fékk að finna hversu mikil útvíkkunin var og gat sagt það upp á hár, og fékk svo að taka á móti sjálf:-) Ég er á fæðingadeildinni alla þessa viku, þannig að ég næ vonandi að tárast nokkrum sinnum í viðbót!
Svo fór ég út að hlaupa á laugardaginn, minn venjulega hring. Ég var ein af því að J er byrjaður á svaka æfingaprogrammi með vini sínum 5 daga vikunnar, þar sem þeir m.a. hlaupa úti 2svar í viku. Annars finnst mér miklu skemmtilegra að hafa smá félagsskap. En ég fór sem sagt út með útvarpið í eyrunum og þegar ég var hálfnuð hringinn, ætlaði ég að hoppa yfir einhverja ójöfnu, nema að ég veit ekki hvernig það átti sér stað....ég flaug á hausinn fyrir framan fullt af fólki!:( Týpisk ég!! Ég auðvitað skammaðist mín svo að ég hoppaði á fætur, hristi lappirnar og hélt bara áfram:-) Svo kom ég heim og fékk plástur á hnéð hjá Jákupi:) Hahahaha, mér líður eins og 5 ára krakka!

6 Comments:
Hún er voða spennt að sjá þig og er alveg til í að hitta þig í sumar:) hehe
Ég skal reyna að vera dugleg að senda myndir!:)
HAHA ég rann einmitt 2 x á nánast sama blett í morgun - reyndar ekki hlaupandi og það var enginn að fylgjast með mér (kannski þó útum gluggann - veit það ekki) en það er alltaf jafn klaufalega vandræðalegt! Staulaðist á lappir í von um að halda jafnvægi HAHAHA..
Já mæli með því að þú verðir kvenn og fæðingalæknir - vantar fleiri konur í þá stétt ;) og endilega fluttu á Ísland í framhaldi - væri sko alveg til í að leyfa þér að taka á móti börnunum okkar :) Híhíhí... fyndið að tala um þetta :þ
Jæja allavega - gangi þér vel í klinikinni áfram - gaman að heyra að allt gengur vel hingað til.
Knús Helga Dröfn
Herborg: Sú litla verður að vita hver tante Ásta er:) Hlakka til að sjá hana í eigin persónu, en ég verð ánægð með nokkrar myndir þangað til!
HD: Já, ég vex víst aldrei upp úr því að gera mig að fífli endrum og eins, öðrum til skemmtunnar:( Eins og þegar ég flaug af Domino´s vespunni á fleygiferð beint fyrir utan Hovedbanegaarden í Köben!:S En við verðum að fá að vera til líka;)
Það væri gaman ef þetta verður raunin, með vinnu heima á Íslandi og nóg að gera í fæðingalækningum, en það verður allt að koma í ljós. Maður veit aldrei hvað gerist! En þið verðið vonandi löngu farin að eignast börn -og búin- þegar þar að kemur;) hihihi
HAHA jahh maður veit aldrei hmmm... sjáum fyrst til HVENÆR við byrjum áður en við ákveðum að við verðum búin ;)
Ég held að maður geti ekkert verið viss í þeim málum hjá þér Helga Dröfn, ef þú ert eitthvað lík mömmu þinni þá klárar þú ekki barneignir í bráð... það tekur nú lágmark 10-15 ár að hrúga niður 6 stykkjum! :)
Ásta eruð þið farin að telja niður í London? 5 dagar :)
Það verður sko skrítið að skilja stubb eftir, ég held að ég komi til með að sakna hans milljón sinnum meira en hann mín, enda er hann svo ánægður í dvergaborgunum að það skín af honum :)
Tek svo undir með HD að þú ættir að íhuga að gerast kvenlæknir, það vantar alltaf gott fólk og ekki sakar að vera góður að sauma :)
Hehe, takk fyrir það;)
Jú, við erum mjög spennt! Líka eftir að heyra hvort að röddin sé komin aftur á fimmtudaginn;)
Ég væri sko alveg til í að hafa Tedda með, bara til að geta kysst og faðmað hann!
Post a Comment
<< Home