Tuesday, February 14, 2006

Nóg að gera

þessa dagana. Ég er í klinik alla daga að prófa eitthvað nýtt og er dauðþreytt af því að ég fer of seint að sofa:-) Við erum búin að panta miða til London í mars þar sem við ætlum að hitta Kristinn og Pálínu! Einnig er Pálína búin að panta miða fyrir okkur á We will rock you, Queen söngleikinn. Við erum rosalega spennt og hlakkar mikið til að sjá þau!
Þangað til gerist þó margt og mikið, partý á partý ofan, m.a. árshátíð íslenskra læknanema í Danmörku, sem haldin er í Árósum í þetta sinn. Gott að maður er ungur enn:)

7 Comments:

At 10:24 PM, Anonymous Anonymous said...

Já greinilega missir maður af fréttum af fólki þegar maður er einn í útlöndum - eru þau að fara til London ;) HAHA, verður ferlega gaman hjá ykkur. Ábyggilega gaman hjá ykkur að hittast og fara í leikhús - skilst að það sé geggjað að fara í leikhús í Englandi! Hljómar spennó - hafið það bara sem best :)

 
At 1:16 PM, Blogger Ásta said...

Takk takk! Ég giska á ad thetta hafi verid Helga Drøfn sem thetta ritadi:-)

 
At 5:16 PM, Blogger herborg said...

Cool að hoppa til London, sáum We will rock you seinast þegar við fórum til London, voða gaman:) Ég mæli líka með ABBA söngleiknum, hann er frábær! Svona ef þið viljið sjá fleiri en einn;)

 
At 6:37 PM, Blogger Ásta said...

Hehe, það gefst ekki tími í meira, en takk fyrir tillöguna;) Þetta verður ultra stutt helgi af því að ég þarf að vera mætt á spítalann aftur á mánudagsmorgni:( Ég hefði verið til í mun lengri ferð, en það verður að bíða betri tíma. Betra stutt en ekkert!

 
At 10:07 AM, Anonymous Anonymous said...

Hey, hvenær farið þið?

Ég er einmitt að fara til London 18.-20. mars :-)

Kveðja,
Sigrún Ósk

 
At 5:20 PM, Blogger Ásta said...

Við förum 2.-5.mars:( Ég var einmitt að hugsa um hvenær þið Hlé farið í mikið rædda ferð ykkar:) Súrt að það skyldi ekki vera sama helgi! Þú verður bara að kaupa miða til DK næst þegar tilboð er!:-)

 
At 8:33 AM, Anonymous Anonymous said...

Ha ha ha - já þetta var víst ég þarna efst!

Hmuff þarf alltaf að hafa mig alla við til að muna eftir að setja nafnið mitt undir. Sé það nú oftast um leið og ég ýti á publish, en greinilega verið að flýta mér eitthvað eða annars hugar þegar ég skrifaði þetta :)

Chiao och ha det bra Helga Dröfn :)

 

Post a Comment

<< Home