Algjör bilun!
Þetta mál um Muhammed teikningarnar hérna í Danmörku og á miðausturlöndum er algjörlega að fara út í öfgar. Ég skil ekki hvað er að gerast.
Svo er annað mál sem er að fara út í öfgar, og það er ruslamálið í húsinu okkar!:) Ruslið var ekki tæmt í síðustu viku og nú eru ruslatunnurnar að drukkna í eldhúsrusli. Húsvörðurinn okkar tapaði sér þar af leiðandi og lét það bitna á Lene og Simon fyrir að sortera ekki ruslið hjá sér, og að fyrir að henda dagblöðum í ruslið! Hann öskraði og skammaðist út í þau og talaði um að ef allir tækju sig ekki saman í andlitinu þyrftum við að fá ekstra tunnu og þá myndi húsaleigan hækka. Hann ætti að horfa aðeins meira á sjónvarpið og átta sig á muninum á smámunum og stórmálum:) Ég og Jákup fórum út í dag og krömdum alla pappakassa og slíkt og tókum allt það rusl sem kom í veg fyrir að hægt væri að loka tunnunum og settum í stóra svarta poka, og lögðum við hliðinna á. Hann brölti svo ofan á tunnurnar og hoppaði á þeim þangað til hægt væri að loka. Ég fór svo seinna í dag og talaði við kærustu húsvarðarins. Þá sagði hún skömmustuleg að ruslabílarnir væru kannski ekki búnir að koma út af hálku og að það væri kannski eina ástæðan fyrir því að það var svona mikið rusl. Best að æsa sig út af engu:) hehehe

1 Comments:
hehehe já það eru misstór mál í gangi hjá fólki :)
Sem betur fer auðveldara að bakka út úr sumum málum en öðrum!
Helga Dröfn í SE
Post a Comment
<< Home