Brrrrrrrrrrrr
Ég fór út að borða í gær með 30 manna hóp. Það voru 5 læknanemar að klára námið á dögunum, og þetta var kveðjukvöldverður, því þau eru öll að flytja heim núna næstu daga. Skrítið þetta líf. Og tíminn líður svo hratt. Ég man þegar ég byrjaði í læknanáminu, hvað mér fannst þau vera komin svakalega langt. Þá voru þau á 5.önn. Nú er ég að byrja á 9.önn og þau eru að klára! Jedúddamía hvað maður er orðinn fullorðinn! Kannski maður fylgist með útskriftinni á föstudaginn til að fá smá smjörþef af því sem er í vændum handan við hornið:) Ég hlakka til að klára. Ég hlakka hins vegar ekki til embættisprófsins!
Það var nú það. Og hendurnar á mér eru gaddfreðnar, og ég er heima hjá mér! Alveg er ég komin með nóg af -7 stiga hita og hálku! Ég er komin í gammósíur undir gallabuxurnar. Ef einhver vildi vita það. Best að fara að hunskast í skólann að gera eitthvað af viti. Þori varla út í kuldann samt. Gírarnir á hjólinu frjósa bara. Það er svo pirrandi.

3 Comments:
Nuna er eg ad byrja a 5.onn og mer finnst tu vera komin otrulega langt ;) eg kem aftur ut bradum og ta bid eg ykkur stelpunum i manhattan og adra kokteila svona sex and the city style ;)
Hahaha, gaman að heyra;) Hlakka til að smakka útlenska kokteila og hittast!
Mér fannst þú komin ógeðslega langt þegar ég byrjaði og nú er ég komin á sama stað og þú varst þegar ég byrjaði!! Tíminn flýgur!! Líst ógó vel á kokteilapartý! :) Seeya
Post a Comment
<< Home