Brúðkaup
Ég fór að vinna í morgun kl.06.45 eftir 5 tíma svefn af því að nágrannar okkar héldu partý! Einhvern veginn passar það alltaf, að þegar ég á dagvakt daginn eftir þá halda þau partý:( Aðrir nágrannar okkar giftu sig í gær og það var rosalega rómantískt. Vinir þeirra voru búin að skreyta húsið að utan með æðislegum blómum og borða. Svo sáum við brúðina fara af stað í kirkjuna (í hvítum limmó) og kjóllinn var æði! Þegar þau komu heim í nótt var svo búið að kveikja á kertum um alla íbúð, strá rósablöðum um allt og setja kampavín á klaka. Svo rómó.....
Við J vorum annars dugleg í dag. Hann kom upp á spítala og hitti mig eftir vinnu og svo fórum við að æfa og tókum vel á því. Við erum svo rétt í þessu að fara að borða heimatilbúið Mousaka:D Mmmmmmmm.......

6 Comments:
Hmm hugsanlega kannski gæti verið að ég vissi um íbúð - skal kanna málið!
Nema þið séuð pikkí á staðsetningu???
Hvað er mousaka? aldrei heyrt þetta skrítna nafn :)
En af hverju fáum við ekki að vita hvaða vinnu? Er það leyndarmál? Er Jákup líka kominn með vinnu heima - eða ætliði að redda því. Svo sem ábyggilega ekkert erfitt fyrir ykkur að komast í afleysingar.
En gangi ykkur vel og hafið það gott :) Síjú HD
Naaaaaah, við nennum ekki að flytja:) Ég lifi af svona eina og eina andvökunótt!
Mousaka er einskonar lasagne, en í staðinn fyrir lasagneplötur er sett auberginer (veit ekki hvað það heitir á íslensku, svona svart grænmeti) og síðan er jógúrt ofan á í staðinn fyrir ost.
Jákup er ekki kominn með vinnu, en við erum að vinna í því. Ég er búin að fá vinnu, en þar sem mér finnst svolítið langt í að ég byrji, og af því að ég hef bara fengið staðfestingu í maili, þá ætla ég að bíða aðeins með að segja hvað....ef kynni að eitthvað breyttist:)
Takk sömuleiðis! Vona að mailið hafi verið vinkonu þinni einhver smá hjálp!
Korter í 7? Það er næturvakt fyrir mér! Hahahaha!
Dórið
P.s. ég ætlaði að skrifa eitthvað gegt profound of sniðugt, en mér dettur ekkert í hug. :(
Það er líka snemmt fyrir mig! Ég hata að vakna k.05.45 og hjóla út í kuldann:-( En þá er maður líka búinn að vinna kl.15:) Allur dagurinn eftir!
Varstu ekki að tala um að þig vantaði íbúð á Íslandi næsta sumar? HAHAHA ætla ekkert að neyða þig til að flytja sko!! Get svarað því betur þegar nær dregur sumri með hvort ég viti um íbúð :)
Helga Dröfn
P.s Jóhanna fær kannski að senda þér meil ef henni dettur eitthvað í hug - þakkaði annars fyrir hjálpina :)
Hehehe, ég hélt að þetta væri komment á andvökunætur hérna í húsinu, og að það væri tími til kominn að flytja:) Stór misskilningur!
Hún má endilega skrifa mér mail ef hún hefur fleiri spurningar.
Post a Comment
<< Home