Gleðilegt nýtt ár!
Ég skrifaði pistil um daginn en tölvan át hann, skömmin hafi það, þannig að ég hef ekki nennt að skrifa það aftur! En ég átti frábær áramót með henni Sigrúnu og æðisleg jól með fjölskyldunni og er nú komin heim til Odinsvé í kuldann og næturvaktirnar. Við höfum það samt gott, venjulega lífið byrjar á morgun og við erum að byrja í átaki eftir jólin;)
Ég verð að henda þessu inn, ég er svo samviskusöm, er búin að taka þátt á fleiri síðum og það er komið að mér:
Settu nafnið þitt í kommentakerfið og...:
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig.

18 Comments:
Dóris!!
*réttiupphönd*
Þetta var ég sem rétti upp hönd
Guðrún
me me me!
Dóris:
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
Þú ert besta og einasta systir mín í öllum heiminum! Þú ert búin að eiga ógrynni af þvældum náttkjólum sem fjölskyldan finnst hún knúin til að endurnýja hver jól. Þú ert búin að vera ástfangin að fleiri kvikmyndastjörnum og poppstjörnum en ég hef tölu á!
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
Öll lög með Michael Jackson og Skítamóral! Lord of the rings, ég veit ekki hversu oft þú ert búin að sjá þær:)
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
Remúlaði, því að það var það einasta sem þú borðaðir á brauð á tímabili!:)
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
Ég er eins og allir vita algjör gullfiskur þegar kemur að minningum! Vildi að ég myndi eftir jafn miklu um aðra eins og aðrir gera um mig:( En hvað er ljós minning? Ég hef jú þekkt þig alla ævi! Ég man þó greinilega þegar ég og þú vorum sendar inn til að taka til hjá okkur og ég gerði úr því leik og trampaði eins og grýla sem var að koma og taka okkur ef við værum ekki búnar að taka til áður en hún kæmi:) Ég man líka hvað mér fannst gaman að kenna þér allt sem ég lærði í skólanum, og ég náði að kenna þér að lesa áður en þú byrjaðir sjálf. Það var á meðan þú leyfðir mér að ráðskast með þig!:) hehe
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
Kisu, þú ert algjör kisa!
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
Ég hef fyrir löngu sætt mig við að komast ekki að öllu um þig, við erum svo ólíkar!:)
7. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig.
Fúsi og fjallakrílin...hehehe
Guðrún:
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
Mágkona mín, líffræðingurinn! Þú ert svo ótrúlega afslöppuð og notaleg að vera í kringum, það er alveg frábært. Á sama tíma ertu skemmtileg og fyndin og með mjög líkan húmor og ég! Við höfum auk þess sama bókasmekk, nördarnir tveir. Ég gæti ekki óskað þess betra. Svo áttu líka uppáhaldsfrændann minn, hann Tedda strump:)
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
Ég held að það sé eitthvað með Leonard Cohen. Mér finnst hann oft vera á fóninum hjá ykkur hjónum þegar ég kem í heimsókn. Og svo fórum við jú saman í bíó og sáum The family stone.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
Diet coke, ekki spurning! Það minnir mig reyndar á alla familíuna, en alveg sérstaklega á þig:) Og tex mex pizza...
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
Ég hitti þig í fyrsta skipti í partýi hjá þeim piparsveinum Kristni og Hauk, þar sem þið voruð bara að kynnast. Ég man að það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá þig, var að ég hefði hitt þig einhvern tímann áður....en hef ekki enn komist að því hvar það var..
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
Stupid spurning, en ég verð að segja það sama og um Dóru, þú ert köttur. Heimakær, en kelin, og fylgist mikið með umhverfinu.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
Hvenær á að flytja til DK???:)
7. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig.
"Gastu sagt þetta með meiri dönskum hreim???:-)"hahaha
Danski kúrinn....á morgun! Heheheh
Herborg:
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
Vinkona mín arkitektinn!! Þú átt afmæli sama dag og ég, og það liggur við að ég fari að trúa þessum stjörnuspám, því við erum svo líkar með margt! Þú ert skemmtileg og með mikinn húmor, og alltaf til í allt. Þú hefur gaman af að elda og sérstaklega að prófa nýjar uppskriftir sem heita vafasömum nöfnum:) Þú ert mjög original og með skemmtilegan fatasmekk. Þú ert ekki mikið fyrir væmni og færð útbrot þegar maður fer á trúnó með þér!!!:Þ
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
Allt sem hefur með Eurovision að gera minnir mig á þig, því þú ert vís með að vera búin að læra textana utan að, hahaha.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
Bjór að sjálfsögðu! Kemur ekki annað til greina.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
Þegar ég byrjaði í 3.X í MS, þá komstu 2 dögum of seint af því að þú hafðir verið á Benidorm eða eitthvað álíka með Bjössa og Helga og fleirum. Ég man að þú varst eins og negri! Ég var mjög öfundsjúk út í sólbrúnkuna;) Mér fannst þú svolítil strákastelpa, man ég, af því að þú varst svo mikið með Helga og strákunum.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
Ég skil ekki þessa dýraspurningu, ég er svo mikið bæjarbarn, þekki bara gæludýr:) Þú ert alla veganna dýr sem er forvitið en samt dularfullt:)
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
Hvenær er bryllup? (svo skemmtileg þessi pressa, fyrst bumban er komin! hehehe)
7. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig.
"Neeeeeeeeeerd"
"Hver er ólétt núna???!!"
"Ef við töpum þá þykjumst við bara vera Norðmenn! -Nei, damn!!!" haha
Hehe, ég skulda þér! En ætla samt að leggja inn pöntun hér! Mitt er í vinnslu ;-)
Sigrún
Veit ekki hvort ég eigi að gera þér það að segja "ég ég" þar sem við kannski þekkjumst ekki það vel :D
En ef þú treystir þér til þætti mér það gaman :) En ég móðgast alls ekki ef það er erfitt. Ég er ekki viss um að ég myndi treysta mér í það...
Grasekkjan í Sverige
Þetta kemur um helgina....:)
úúú spennó :) hlakka til
Ásdís:
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
Vinkona mín, verkfræðingur, looney! Þú ert alltaf að...flugbjörgunarsveit, tai kwon do, klifur, vinna, söngnám, kór, fótbolti, djamm, fjallgöngur, nám.... Ég varð úrvinda á því að lesa áramótaannálinn þinn í fyrra:) Þú hikar ekki við að létta þig um eins og 5kg fyrir tkd keppni til að komast í besta þyngdarflokkinn, og hefur löngum ekki getað haldist á karlmanni. En eitthvað er það að breytast seint og um síður;) Og best af öllu: þú ert alltaf hress og hlæjandi.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
Ekki spurning! "Never ever" med All saints;) Hversu oft sunguð þið það í menntó?? Þið unnuð auðvitað söngvakeppnina í MS með þessu lagi. Lagið "Barbie girl" með Aqua er auðvitað líka ofarlega í minningunum!
Og varðandi mynd þá dettur mér helst í hug videoið sem var tekið upp í partýi heima hjá þér fyrir árshátíðina í 4.bekk:)
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
Thailenski maturinn sem þið Arndís elduðuð í matarklúbbnum heima hjá þér þegar þið voruð nýkomnar heim frá Asíu. Hann var svakalega góður! Ég er enn að bíða eftir uppskriftinni;)
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
Ég var búin að taka eftir þér í MS áður en við lentum saman í bekk, en kynntist þér ekki fyrr en í 3.bekk. Þú varst örugglega sú eina í skólanum sem datt í hug að hjóla stundum úr Grafarvoginum í skólann á morgnana:)
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
Býfluga -alltaf á ferðinni!
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
Hvernig fer maður að því að léttast um nokkur kg á mettíma??:) Hvernig gengur sambúðin?:)
7. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig.
"Hvað er þetta fyrirtæki Spölur???"
Sigrún:
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
Þú ert líka ein af þessum ofvirku. Þú hefur fengið fleiri atvinnutilboð en ég á eftir að fá það sem eftir er! Enda ertu frábær persónuleiki, meiriháttar penni og auðvitað stórglæsileg! Þú varst svo skynsöm að þú varst alltaf í gammósíum innan undir buxunum svo þér yrði ekki kalt. Það er sko önnur hlið uppá teningnum núna -núna er útlitið mikilvægara! Hahahaha. Þú lumar þó á allskonar nördaskap. Sem betur fer:Þ hehe Ég hef heldur aldrei kynnst neinum jafn óheppnari í karlamálum! Enda hefurðu ferðast um allan heim í kjölfarið...Perú, New York, Florida, Þýskaland, Danmörk.. Algjör heimsborgari og algjör óhappagikkur.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
Cranberries! Man ekki hvað lagið heitir og nenni ekki að leita að því, en við stilltum alltaf græjurnar þínar til að vekja okkur með þessu lagi þegar ég var í heimsókn hjá þér. Það var þægilegasta vekjaraklukka sem ég hef prófað:) Og það var ekki sjaldan, ég var nánast hjá þér allar helgar sem unglingur!
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
Cheerios með rúsínum og mjólk. Af því að ég borðaði það heima hjá þér um helgar. Og pizza frá Barbró.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
Við erum búnar að þekkjast síðan 1981 en ekki ætlast til þess að ég muni eftir því, ég man ekki einu sinni eftir sjálfri mér fyrr en við 6 ára aldur:) Ég man fyrst eftir þér þegar þið voruð nýflutt heim frá Danmörku og mömmur okkar voru að heimsækja hvora aðra. Mér fannst þú svolítið skrítin. Ekki síst fyrir það að þú vildir ekki borða nammi. Ég hafði aldrei heyrt aðra eins dómadagsvitleysu! Enda hefurðu þurft að heyra það síðan:) En ég var fljót að koma þér upp á lagið! Hjúkket. Kenndu mér bara um öll aukakíló:Þ
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
Lunda, af því að þú safnaðir öllu með lundamyndum á.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
Hver skemmdi bílinn þinn eiginlega?? Og hvernig er hægt að týna skólaumsókninni sinni í póstinum?
7. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig.
"Soooorrrrrrrrrrry.....keyrði trubadorinn þig heim?"
"Hvar er vinur ykkar?" ...10mín seinna: "Hvað, fór hann bara heim að sofa blessaður?"
"Draumaprinsinn minn hvarf!"
"Áttu ekki aðra sæng??????" Hahahahahaha
Helga Dröfn: Þetta verður kannski ekki alveg útfyllt, en here goes:)
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
Helga Dröfn nuddari, kærasta Lalla frænda. Þú ert mikil útivistavera, enda þeysist þú um fjöll og firnindi með Lalla í jeppanum við hvert tækifæri. Þó ekki síðustu mánuði, því þið hafið verið búsett í Svíþjóð. Það er þó ekki langt að bíða, nú ertu á leiðinni heim:) Þú ert mikil félagsvera og fjölskyldumanneskja, og finnst gaman að vera í góðra vina hóp og spila póker og Trivial. Góðan mat getur maður líka alltaf innbyrgt;) hehe
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
Ég verð bara að segja pass hérna:)
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
Karamellur! Ég borðaði nokkrar af karamelluhringnum (einum af mörgum) sem þú bjóst til fyrir Siggu fyrir jólin í fyrra. Þvílík þolinmæðisvinna...fjúú!
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
Ég hafði einhvern tímann hitt þig með Lalla og Eyrúnu og í hinum ýmsu partýum, en ég man samt best eftir þér í partýinu sem þú hélst sumarið 2003. Það var í fyrsta skipti sem við töluðum saman af einhverju ráði.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
Lamb! Með allar þínar lambakrullur:)
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
Hvenær á svo að skella sér til Aðalvíkur?:)
7. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig.
Pass!
Ég gleymdi...Sigrún....hvernig fór kosningin???
Hahahahahaha!! Takk fyrir :-) Ég er alveg að fara að klára minn skammt! Er í vinnslu og kemur á næstu dögum!
Fannst sérlega gaman að Cranberries vekjaraklukkunni (búin að gleyma henni!), seríósinu (mjög dæmigert á mínu heimili, hehe) og sprakk úr hlátri yfir "soooorryyyy... keyrði trúbadorinn þig heim!" Ahahahahahaha, ég er versta vinkona í heimi!!!
Knús,
Sigrún
P.S. Kosningin fór á versta veg - ég skil ekki hvað klikkaði. Það hefur verið helvítis exemið, hehehe.
:D
Já djöfull ertu góð, Herregud!
Aðalvík - í sumar nánar júlí :) vonandi með þér.
Lag/mynd - á mörkunum að ég gæti svarað því sjálf :) HEHE
Takk fyrir þetta! Því miður efast ég um að ég leggi þetta á mig - en þó er aldrei að vita þegar mér fer að grútleiðast hérna einni HEHE
Post a Comment
<< Home