Wednesday, October 12, 2005

Mamma og pabbi koma til mín á morgun!! Ég get ekki beðið!

Letin er að drepa mig. Ég nenni ekki að læra meira fyrir prófið á föstudaginn:( Tek smá skorpu á morgun. Svo ætlum við út að borða annað kvöld. Jei! Þá er bara komið haustfrí, og ekki veitir af!!

Ég lék lækni í skólanum í dag. Sjúklingurinn var ung stelpa sem var í krísu af því að kærastinn hætti með henni og hún vildi fá svefnlyf til að sofa. Það kom leikkona og lék sjúklinginn, og hún lék hana svo vel að ég var alveg mállaus, og vissi ekkert hvað ég átti að segja! Hún hágrét með tárin lekandi niður kinnarnar! Þetta gekk svo sem en dj.... er óþægilegt að vera í þessari aðstöðu. Bekkjarfélagar mínir voru sammála um að þetta hefði verið langerfiðasti sjúklingurinn, af því að maður þarf að fá hana til að horfast í augu við að sambandið hafi kannski ekki verið það gott fyrir, og að hún komist alveg örugglega í gegnum þetta án þess að fremja sjálfsmorð osfrv. Og sjá til þess að hún hafi einhvern að tala við. Það er greinilegt að við erum engir leikarar, við erum alltaf eins og asnar þegar við eigum að leika. Það er svo erfitt að setja sig inn í aðstöðuna þegar það er fullt af fólki að horfa á þig og verið er að taka þetta upp á video!

Chiao!

2 Comments:

At 4:27 PM, Blogger Ásta said...

Vá bara ritgerð!:) I´m toutched! (heldur ekki eins væmið, hehe)

Var að kommenta á vidjoin. Teddi er bestur! Mamma er búin að lýsa fyrir mér hundrað sinnum hvernig hann beyglar eyrað og klappar fyrir sjálfum sér, og það var ekki minna fyndið að sjá það á video!;)

Dugleg að fara til ömmu, ég vildi að ég hefði getað komið með. En það er búið að vera mjög gaman að hafa mömmu og pabba í heimsókn. Þau eru búin að haga sér mjög vel og dekra vel og vandlega við elstu dótturina:) Við fórum til Þýskalands á laugardaginn og greyin þarna fyrir sunnan kunna engin mál nema sitt eigið, þannig að ég varð að dusta rykið af menntaskólaþýskunni (sem er ekki upp á marga fiska!) og panta McNuggets á þýsku! Þannig að mig grunar hvað þetta síðasta þýðir:) Ditto!

Bið að heilsa pjúkus mjúkus og Pálínu!

 
At 6:40 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég væri sennilega frekar í hláturskasti frekar en að geta leikið nokkuð. Finndist þetta sennilega líka frekar óþæginlegt. En þetta er heldur ekki öfundverð staða í "venjulega lífinu" og getur hún komið upp eins og svo margt annað ótrúlegt í þessu lífi :)

En gangi þér áfram vel. Gott þú gast látið dekra dáldið við þig. Ekki veitir af :)
Ha det bra. HD og Lallinn hennar

 

Post a Comment

<< Home