Tuesday, October 04, 2005

Lasin í lopapeysu

Ég var búin að skrifa langt blogg, og svo hvarf það! Urrrrrr

Alla veganna, það fjallaði bara um nýja æðislega sófann okkar, nýja ruggustólinn okkar, hvernig ég nenni ekki í skólann og að ég vil helst bara sitja heima í stofunni. Verst að ég les ekki sérlega mikið heima hjá mér:S

Ég er lasin, með hita og kvef, og er farin upp í rúm að rifja upp fyrir morgundaginn. Það kemur leikari í skólann að leika manío-depressivan sjúkling og við eigum að leika lækni. Alltaf gaman að sýna leiktilburði fyrir framan allan bekkinn! NOT. En við lærum af þessu...

5 Comments:

At 11:19 PM, Blogger Ásta said...

Nú jæja, ég skrapp í burtu og á meðan fékk ég að vita að það hefði komið error, og ég reiknaði bara með að bloggið hefði horfið! Þá fáiði bara að lesa tvisvar hvað sé að gerast í lífi mínu þessa dagana!:)

 
At 1:00 PM, Anonymous Anonymous said...

Hehe ætlaði einmitt að benda þér á að bloggið hefði ekki horfið heldur væri það hérna að neðan ;)
Til hamingju með sófann og láttu þér batna... og góða skemmtun á árshátíðinni, er viss um að þú finnir þér eitthvað til að fara í. Er þetta svona gala kjóla kvöld eða bara "fínt pils" kvöld? Þú átt amk nóg af flottum pilsum :Þ

 
At 4:18 PM, Anonymous Anonymous said...

Ææææ láttu þér batna snart :) Góða skemmtun í læknisleik híhíhíhí

HD og Lalli

P.s sé að spamm-vörnin er komin upp :) þvílíkur léttir :)

 
At 9:34 PM, Anonymous Anonymous said...

Jibbí sófi! :D Ég er mjög hamingjusöm fyrir þína hönd. Hehehe! En já, nei...ég myndi ekki vilja þurfa að gera svona nokkuð fyrir framan bekk. Ég fæ alvöru kvíðaköst af tilhugsuninni um hópavinnu...hvað þá svona nokkuð.

Dórið

 
At 8:36 AM, Blogger Ásta said...

Það er sko gala í kvöld og ég fór til Bornholm-Anne í gær og mátaði alla kjólana hennar. Ég hins vegar er barmmeiri en hún (já þessi dagur rann upp, ég var meira en hissa!:))og allir kjólarnir voru aðeins of þröngir yfir barminn:( Þannig að ég dróg fram kjólana úr menntó og er að melta valið. Valið er á milli þriggja kjóla!

Ég er hins vegar ekki alveg kominn á toppinn heilsufarslega og líður eins og skít!:( Vona að það hverfi fyrir kvöldið!

Skype hljómar vel!:)

 

Post a Comment

<< Home