Heimsóknir
Ég er svo montin! Ég stytti alveg sjálf í fyrsta skipti gallabuxur á sjálfa mig! Jei!! Þá get ég loksins réttmætt tilveru saumavélarinnar minnar:) Venjulega bíð ég þangað til ég fer heim næst og læt mömmu um það, en núna nennti ég ekki að bíða....haha
Haustfríið er að verða búið og ég er að byrja á leiðinlegustu blokk í heimi á mánudaginn:( Forskningsmetodologi! Ulllllllabjakk. 3 vikur í helvíti. En fríið er hins vegar búið að vera yndislegt! Mamma og pabbi komu í heimsókn í 5 daga og leigðu bílaleigubíl. Við skruppum m.a. til Þýskalands og keyptum ódýrt pepsi max og bjór og kíktum á Flensburg. Við keyrðum líka til Aabenraa á leiðinni heim og skoðuðum bæinn. Svo eldaði pabbi snilldarmat, t.d. vínarsnitzel í tilefni af Þýskalandsferðinni, og kókóskjúkling og ég eldaði fisk sem þau komu með handa mér. Ég vill hafa þau hjá mér alltaf:( Það er svo gott þegar dekrað er við mann:-)
Á morgun kemur uppáhaldsfrændi Lalli og kærastan hans, hún Helga Dröfn, í heimsókn alla leiðina frá Svíþjóð! Það verður æðislega gaman að sjá þau. Ég er búin að tala svo mikla íslensku þessa vikuna að það er engu laginu líkt:) Alltaf gott að æfa sig!
Svo var ég að hlusta á þetta í gær:
http://www.fm957.is/uploads/FileGallery/Files/Zuuber/Hornid/Horumamma.wmv
Djísús.....vandræðalegt!!

2 Comments:
Takk fyrir okkur. Þetta var alveg yndisleg stund.
Kram og kossar frá okkur 2 í svíþjóð. Hlakka til að hitta ykkur svo hér :)
HD & Lalli
Takk sömuleiðis! Það var æðislegt að sjá ykkur;) Við komum í heimsókn við fyrsta tækifæri!
Knús
Post a Comment
<< Home