prrrrróf
Nú er aftur orðið skítkalt í DK, enda er það best þegar maður er hvort eð er að læra fyrir próf:)
Hér á heimilinu er allt undirlagt undir bæklunarlækningar og lífeðlisfræði. Nú er ég búin að lesa allt um gigt þannig að ég get kannski loksins sett mig inn í skavanka þessarar biluðu fjöskyldu sem ég tilheyri:) Ég fór í próf úr því í dag og gekk alveg prýðilega. Ég ætla varla að vilja trúa því að það sé enn ein blokkin eftir á þessari önn áður en ég kemst í sumarfrí:( Næst er það blóðblokkin, 3 vikur takk!
J fer í próf á föstudaginn, og ég held að við séum að slá persónulegt met í litlu sjónvarpsglápi um þessar mundir. Sjónvarpið hefur ekki verið kveikt í viku eða svo! Ég ætti kannski að athuga hvort það virki ennþá, bara svona til að vera örugg:S Það sem meira er, við gleymdum að horfa á Lost á mánudaginn! Þá er mikið sagt...
Kona vikunnar er hún Herborg sem varð Arkitekt á mánudaginn! Til lukku!!!! Það kannski kemur sá dagur í lífi mínu að ég geti sagt að ég sé orðin læknir......en hann er ennþá mjög fjarri að mér finnst:-)

3 Comments:
gaman að vera kona vikunnar:) takk fyrir það!:)
Guðrún var einmitt að klára þetta Lost dæmi, ég held að hadritshöfundarnir hafi fengið heilablóðfall og misst um miðbik tökin á annars ágætu bulli. Ætla nú ekki að fara að skemma neitt, en það var Mrs. Plumb með kertastjakanum í eldhúsinu...
Kristinn
Ég var gjörsamlega límd yfir þessum þáttum til að byrja með en mér finnst þeir vera búnir að teygja lopann ansi mikið upp á síðkastið. Hlakka samt til að sjá um hvað þetta snýst allt saman:)
Svo byrjar ný sería af American Next Top Model í kvöld! Það ætti að leggja mig inn fyrir að vera með lélegan smekk á sjónvarpsefni en ég get ekki að þessu gert:(
Post a Comment
<< Home