Ég er komin í sumarfrí!! Ég var að ljúka tveimur vöktum hjá kallinum sem ég passa, og þarf ekki að fara aftur að vinna fyrr en 7.ágúst!!:) Ljúft....
Ég missti hjartað niðrí buxur í dag á leiðinni heim í leigubílnum úr vinnunni. Það var stór og feitur leigubílstjóri að keyra mig og ég sat frammí þótt að ég nenni eiginlega ekki að tala við þessa kalla. Svo sat ég í mínum draumaheimi, að hugsa út í líkurnar á að kallinn bara keyrði eitthvert afskekkt og myrti mig (weirdo, ég veit) eins og maður er að lesa um hérna í Danmörkinni öðru hverju, nema hvað, hann snarbeygir allt í einu inn á einhvern einbreiðan sveitarveg og brunar áfram eins og hann eigi lífið að leysa (hann var samt búinn að keyra eins og psycko alla leiðina)! Þá fannst mér ég bara að vera að lifa mína verstu martröð, var farin að ímynda mér hvernig ég yrði taugaveiklaður aumingi allt mitt líf ef hann skyldi nú þyrma lífi mínu eftir að vera búinn að nauðga mér og henda mér út í vegkant einhvers staðar, ég var nánast búin að aflýsa miðanum mínum til Íslands með vinunum og segja bless við læknisferilinn. Mér tókst þó að spyrja skálfandi röddu hvort að hann væri viss um að þetta væri vegurinn til Odense og hann fullvissaði mig um það, eða reyndi....:) Eftir 5mín var ég samt farin að kannast við mig, kallinn hefur bara tekið short-cut. Ég komst ss heim á höldnu. Greyið kallinn, örugglega hinn saklausasti, og hefur ekki haft grænan grun um hvað ég var nálægt því að henda mér út úr bílnum á ferð! Hemja ímyndunaraflið Ásta!!
4 dagar í Ísland!
Til hamingju Rúna frænka með læknatitilinn í gær!!

5 Comments:
LOOOHOOOHOOOOHOOOOOOLL!!
Þú ert svoddan kjánaprik Ásta mín :D
Dóris miklis
Ég skil þig mjöööööööög vel, mér hefði ekki verið sama!! gott að þetta var vænsti kall:) Góða ferð heim og sjáumst heima:)
Ég skil þig mjög vel, enda er ég búin að banna Írisi að taka leigubíl ein heim. Eftir að ein stelpa á kolleginu var nauðgað á leið heim af djamminu :( Farðu því varlega!
En á glaðlegri nótum þá styttist í að maður kemur sjálfur heim eftir laaannga dvöl hérna úti. við eigum nú örugglega eftir að hittast eitthvað!
Haukurinn
p.s af leigubílstjóranum by the way
haukur
Úps!! Og ég sem hélt að ég væri paranoid! Ég fer varlega eftir þetta:(
Hvenær komið þið heim Haukur? Ég ætla að halda upp á afmælið mitt 9.júlí, ykkur er að sjálfsögðu boðið! Vona að þið séuð komin heim þá:)
Ég fer heim á morgun, og fæ mér talfrelsi og númer heima, ég skrifa það hérna á bloggið um leið og það er komið. Herborg þú hringir bara þegar þú ert mætt heim og þarft á hjálp að halda við að mála:-)
Post a Comment
<< Home