Svona var dagurinn hjá mér, enn sem komið er..:
Kl. 7: Ég vaknaði við vekjarakukkuna og sneri mér á hina hliðina ákveðin í að njóta þess að sofa í klst í viðbót og skippa æfingu!
Kl. 7.10: Ég vaknaði við það að ég fékk sms frá Kamillu þar sem hún tilkynnti að hún væri heldur ekki að fara að æfa;)
Kl.9-12: Kennsla þar sem ég og tveir bekkjarfélagar mínir fengum náðarsamlegast að framleggja eitt verkefni fyrir bekknum fyrir framan kolklikkaðan prófessor sem er að kenna okkur þessa dagana. Ég var nú ekki mjög stressuð fyrir það verkefni því eins og það kom í ljós, þá var maður ekki fyrr búinn að opna munninn til að ausa út vísdómum sínum um járnskort, en maðurinn tók sjálfur yfirhöndina! Fínt mál;)
Kl.12.15: Æfing, tekið vel á því!
Kl.14.30: Hljóp upp í blóðbankann til að gefa blóð, en var send fram til að borða nestið mitt áður en þau vildu tappa mig!:( Skömmustulegt!
15.30: Komin heim og er að fara að baka pönnsur.....vill einhver?:)

7 Comments:
ég er sko alveg til í pönnsur!!!Kv.Katlan
Of seint!:( Búnar!!
Heyrðu við ætlum að panta einn skammt af pönnsum þegar við komum - og þú færð ekki að borða þær allar sjálf! Namminamm :Þ
Pálína
Það er þá samþykkt!:)
Og ég geri ráð fyrir að þið séuð búin að tala um mig viðstöðulaust, spila fyrir hann upptökur með rödd minni og úða í kringum hann ilmvatninu mínu áður en þið komið til að gera Tedda kláran til að vera knúsaður og kysstur í klessu;) hahaha
Hvenær fæ ég pönnsur? :D
kv.
Lalli
Þú skellir þér bara í heimsókn með HD við tækifæri eftir að þið eruð komin til landsins;) Það er alltaf gaman að fá gesti:-)
Ég er á leiðinni - alltaf á leiðinni til þess að koooma og borða nokkrar pönnsur!!
Kveðja Helga Dröfn
Post a Comment
<< Home