Wednesday, May 25, 2005

Óheppni

Djöfull er ég eitthvað löt að skrifa hérna! Ég er ekki í tölvustuði þessa dagana.. Enda er ég að hugsa um að hætta þessu bloggi bara.

Annars er það helst í fréttum að ég uppgötvaði í eitt skipti fyrir öll um daginn hvað ég er þroskaheft í hreyfingum! Það var nefnilega þannig að ég og Jákup vorum búin að elda þessa þvílíku hollustumáltíð: soðnar kartöflur, bologne, salat og smá dressing, og ég var búin að skræla allar kartöflurnar mínar og skera þær vel og vandlega, ausa salati, dressingu og bologne á diskinn og ætlaði svo aldeilis að fara að gæða mér á þessu -í sófanum (þó að maður eigi aldrei að borða kvöldmatinn sinn við sjónvarpið!)- nema hvað að í því að ég lyfti diskinum upp til að éta nú yfir diskinum eins og mamma sagði alltaf (af því að það ratar aldrei allt upp í munninn á mér!) þá rakst ég í hnén á sjálfri mér og diskinum hvolfdi!!! Yfir fæturna á mér, á teppið og út um allt!! Það var bara ekki annað að gera en að ausa upp kartöflunum (af því að það voru ekki fleiri en þær sem ég var búin að skræla, og ég dauðhungruð) og éta þær!:( Það er búið að henda teppinu.

Ég missi allt þessa dagana. Best að stefna ekki á langan skurðlæknaferil!:(

3 Comments:

At 12:01 AM, Blogger herborg said...

ooops, hljómar eins og ég! Í gær rakst ég í glasið mitt og það sullaðist útum allt + að á einvhern óskiljanlegan hátt flaug gurót af disknum mínum.....

2. júlí????

 
At 11:26 AM, Blogger Ásta said...

haha, ég sagði ekki einu sinni frá öllum hinum atvikunum sem hafa komið fyrir upp á síðkastið:) Ég sullaði t.d. kóki nokkrum millimetrum frá lyklaborðinu sama dag, en er ekki búin að segja Jákup frá því! usssss;)
Þetta hlýtur eiginlega að vera tengt afmnælisdeginum okkar!:)

 
At 4:33 PM, Anonymous Anonymous said...

hæ skvis! var ad rekast a bloggid thitt! Ætla ad bæta ther inn a hja mer ;) Kvedja, Katla, pjentedamsskvisa um stundarsakir :)

 

Post a Comment

<< Home