25 ára
Þá er ég búin að taka þátt í "eventyrlöbet". Ég verð að segja að ég er hálfónýt eftir þá þolraun! Það var mun hlýrra í dag en á æfingunni í síðustu viku, þannig að það var ansi heitt. En ég hljóp á 58,50 mínútum. Ég náði sem sagt takmarkinu;) En Maríanna, systir hans Jákups hljóp þetta á 49 mínútum. Enda kjarnakona, og 1.83 á hæð:) Jájá. Afsakanir afsakanir!! hehe
Elskan mín er svo 25 ára á morgun! Já tíminn flýgur, við erum bara að verða fullorðin. En það verður að halda upp á þetta, þannig að það verður partý hérna á Pjentedamsgade ef það er einhver sem vill mæta á svæðið og skella á hann kanil! Við skruppum til Þýskalands á þriðjudaginn og keyptum bjór fyrir tilefnið. En það verður að segjast að við erum búin að vera ansi óskipulögð í að bjóða fólki í þetta blessaða partý, boðin hafa eiginlega bara ráðist af því hvort við höfum rekist á fólk eða ekki...:S
Svo er litli frændi loksins að fara að skella sér til Boston með mömmu og pabba til að láta kíkja á augun! Þau fara á mánudaginn og ég á eftir að hugsa mikið til þeirra á meðan á ferðalaginu stendur! Margfalt knús frá okkur Jákup hérna í baunalandi!!:)

6 Comments:
til hamingju með afmælið Jákup. Bætist í maíhópinn.
Kveðja Helga Dröfn
Átt þú líka afmæli núna Helga Dröfn? Ég skila kveðjunni til hans!:)
Jeij! Til hamingju með árangurinn í hlaupinu og til hamingju til Jákups með afmælið! *knús*
*Dóra*
Stelpurassgat ;-) Uss, 10 km, þú verður mætt með Kenýabúunum á ÓL áður en maður veit af! Hangandi saman á beinunum, haha.
Til hamingju með karlinn! Ég íhugaði alvarlega að panta mér einn með Iceland Express þegar ég sá þetta en er ein að passa vígið hér í vinnunni og get ekki farið (kolleginn í Þýskalandi).
Þarf að fara að skrifa þér bréf!
Sigrún Ósk
Blessuð, þú hefðir átt að mæta! Vinur þinn uppá efstu hæð mætti í öllum sínum skrúða, að ég held eingöngu til að finna svipbrigðadrottninguna sína, en leitaði til einskis í glaumnum:)
Ég veit ekki einu sinni hvaða mail þú notar þessa dagana eða hvar þú ert að vinna, þannig að þú verður að senda mér mail með status!:) Annars er alltaf að styttast í heimkomuna, þú mátt reikna með afmælispartýi heima hjá Kristni bróður aðra helgina í júlí!
HEHE nei reyndar er ég ekki Naut! En það laðast að mér ógrinni nauta héðan og þaðan! Þekki ógurlega marga í maí - hehe dýr afmælisgjafamánuður! :D
Kveðjur Helga Dröfn
Post a Comment
<< Home