Wednesday, May 18, 2005

Hvítasunnan

Ég er tvisvar búin að ætla að skrifa eitthvað sniðugt, en hef þá verið trufluð! Það var nú samt ekki slæm truflun -á sunnudaginn vorum við skötuhjúin boðin í mat hjá Lene og Simon, og maturinn var til fyrr en ætlað. Við fengum svínalundir og alls kyns! Þá getur bloggið alltaf beðið;) Ég man hvorki af hverju ég var trufluð í hitt skiptið né hvað ég ætlaði að skrifa sniðugt!

Hvítasunnan hjá okkur fór í innileti og lestur (ekki einungis skólabókalestur verð ég að viðurkenna, ég datt í "Dalur hestanna" eftir Jean M. Auel! hehe) þrátt fyrir sól og blíðu. Það er svo gott að slappa af heima öðru hverju og fara ekki einu sinni úr náttfötunum! Við vorum reyndar boðin í afmæli hjá Rúni á laugardaginn, og fengum mjög góðan mat hjá honum, þannig að við þurftum ekki einu sinni að elda alla helgina. Ljúft!
Systir hans Jákups kemur í mat eftir smá stund, best að fara að matreiða!

2 Comments:

At 3:49 PM, Anonymous Anonymous said...

Helvíti hress þessi Chaudes vinur þinn, hahaha!
Hef annars ekki nokkurn skapaðan hlut að segja þannig lagað. Alltaf á leiðinni að skrifa þér bréf samt. Geri það kannski einhvern tímann næstu daga.

Kv.
Sigrún Ósk

 
At 4:10 PM, Blogger Ásta said...

Já, ég hélt aldeilis að ég væri svona ansi vinsæl, en þá var þetta bara hann chaudes!:) Hver sem það nú er! haha

 

Post a Comment

<< Home