Monday, September 14, 2009

Komin með net!

Thank god! Ég var nú alveg að missa mig yfir þessu sambandsleysi. En hafði samt gott af smá pásu;)
Ég er sem sagt búin að liggja í símanum að tala við tæknimenn seinnipartinn af því að það var eitthvað að uppsetningunni hérna. En þetta er komið í lag, og ég get farið að fylgjast með lífi annarra aftur:) Ekki að ég hafi ekki verið í símanum eins og símamella síðustu daga! Ég fæ stærsta símareikning ever eftir þessa viku! Hehe
Kristina byrjar í leikskólanum á morgun og biðin mikla hefst fyrir alvöru. Litla krílið sparkar eins og galin öll kvöld en það er ekki snertur af hríðum eða fyrirvaraverkjum. Ég á greinilega bara að vera ólétt eins lengi og fíllinn.... Ég var reyndar í Odense á laugardaginn, og fékk þá verki í bakið. Þá fór ég strax að vona að það væru merki um að eitthvað væri að gerast, en verkirnir hættu fljótlega!%#! Ég fer að sofa á hverju kvöldi og vona að vakna með hríðar. Það er það snilldarlega við þessar löngu meðgöngur -maður verður svo þreyttur á að bíða að maður fer að vonast eftir verkjum! :D

3 Comments:

At 7:05 PM, Anonymous Anonymous said...

Lattu mig thekkja thetta;) Eg er samt alveg viss um ad hun kemur 40+0! Gangi ykkur vel a morgun i leikskolanum. Knus Sigga

 
At 1:18 AM, Anonymous Anonymous said...

Gangi ykkur vel í leikskólanum á morgun...

Helga Dröfn

 
At 4:06 PM, Blogger Ásta said...

Takk!

 

Post a Comment

<< Home