Flutt
Vid erum flutt, en ekki komin med internet. Internetfyrirtækid er búid ad vera med eintómt vesen og ég er ad verda vitlaus á ad vera sambandslaus vid umheiminn.
Flutningarnir gengu mjøg vel og vid erum ad klára ad koma okkur fyrir. Kristina er búin ad fara í heimsókn á leikskólann sinn og okkur leist bara vel á. Hún byrjar á thridjudaginn.
Ég er ekki búin ad eiga! Ljósmódirin mat barnid í kringum 3200g á midvikudaginn, thannig ad hún verdur kannski svipud á stærd og Kristina. Hún er ekki búin ad skorda sig.
Ég er á bókasafninu og komst í tølvu. Vid Kristina erum ad skoda okkur um í "midbænum" okkar. Hér er bókasafn, bókabúd, bakarí og ørfáar búdir. Svo eru 7km inn til Aabenraa thar sem er miklu stærri midbær.
Skrifa aftur thegar netid er komid.

5 Comments:
Gott að heyra að allt gengur vel :) Njóttu síðustu bumbudaganna..vonandi með tærnar upp í loft ;) Hlökkum mikið til að sjá hvað leynist inni í þessari fínu bumbu ;) Knús*
Jæja gott að þú fékkst ósk þína uppfyllta að ná að flytja og koma ykkur fyrir að mestu áður en sú litla kemur í heiminn:)
Reyndu nú að slappa aðeins af í nokkra daga og svo má sú litla bara fara að láta sjá sig, ekki satt?;)
Gott að heyra frá ykkur.
Gangi ykkur vel að koma ykkur fyrir... í rólegheitunum ekki satt?? ;-)
Helga Dröfn
3.200 - sjallala! Mér finnst það nú bara hellingur. Hvað var Kristina eiginlega þung þegar hún fæddist?
Gleður mig eins og hinar að heyra að þetta gekk vel allt saman. Nú bíður maður bara spenntur eftir að fá að berja væntanlegt afkvæmi augum :)
Rólegheitin byrja formlega á morgun:) Kristina byrjar í leikskólanum og ég verð í sófanum næstu daga að horfa á sjónvarpið ;)
Kristina var 3500g, en reynsla vinkvenna minna er að það er ekkert endilega að marka hvað ljósmæðurnar segja. Kristina var þó líka metin um 3200g á þessum tíma. Ætli þær verði ekki svipað stórar.
Post a Comment
<< Home