Monday, August 17, 2009

Helgin

Við áttum yndislega helgi á Sjállandi. Við skruppum í matarboð hjá frænda hans Jákups á Amager og gistum eftir það heima hjá Annie. Um morguninn tókum við því rólega, lékum okkur og leyfðum Kristinu að æfa sig á nýja hjólinu sem var tekið með í bílinn. Svo sóttum við Annie til kærastans og fórum saman á Bakken. Það átti að rigna um helgina eins og við erum vön (í hvert sinn sem við gerum eitthvað um helgar, rignir á okkur!) en það var æðislegt veður, heitt og sólríkt. Kristina fékk prinsessukórónu og fékk að prófa hin ýmsu tæki. Þessir bílar voru í uppáhaldi og hún fór margar ferðir í sitthvorum bílnum :) Hún var rosalega montin að sitja alein!
Hún fór líka í hringekju og margt annað með pabba, á meðan ég feitalínan tók myndir! Við keyrðum heim að verða 18, og Kristina sofnaði í bílnum í 2 tíma, alveg búin á því eftir daginn. Þá var ekki sjens að koma henni í háttinn, þannig að við fórum saman í bað, og settumst svo saman í sófann með sæng og kodda, popp og djús, og horfðum á Ice Age 2. Eftir það var henni dembt í rúmið, allt of seint, en hún sofnaði samt ekki fyrr en eftir mikið vesen og mótmæli. Svo vaknaði hún ekki fyrr en rúmlega 9 í morgun, þannig að það verður engin dagmamma í dag. Þar á maður að mæta fyrir kl.9. Pabbinn er kominn í frí til þess að fara að pakka fyrir flutningana, þannig að við verðum bara öll heima í dag!
Að lokum bumbumynd af mér og Heiðdísi, tekin á föstudaginn þegar við vorum með smá mömmuhitting heima hjá mér. Heiðdís komin tæpar 37 vikur og ég 35 vikur. Eigum við að giska á hvor eignast stærra barn? Hehe!
Hvernig getur maður gleymt því hvað síðasti mánuðurinn tekur á? Það er ekkert pláss þarna inni lengur, og krakkinn er búinn að vera að ærast alla helgina og virkilega boxa á rifbeinunum mínum. Ég má varla sitja lengur, þá er ennþá minna pláss. Ég er byrjuð að fá smá fyrirvaraverki af og til og grindin er virkilega farin að segja til sín. Maður sefur svo yndislega svona undir lokin eða þannig.

7 Comments:

At 2:22 PM, Anonymous Heiðdís said...

Gott hjá ykkur að skella ykkur í smá reisu. Verður líklega ekki hægt mikið á næstunni. Við erum náttla flottastar bumbulínurnar, kannski ég ræni myndinni á mína síðu:o) Það er æðislegt að vera með hitaköst, spörk alveg upp í brjóst og reflux ef manni dettur í hug að borða venjulega. Samdrættir fyrirvaraverkir grindarverkir bjúgur, það væri hægt að semja lag um þetta hehe. Knús héðan og þú mátt ALVEG eignast stærra barn en ég:o) Kveðja Heiðdís

 
At 8:07 PM, Blogger Ásta said...

Ef ég gæti fengið eina ósk uppfyllta, þá myndi ég skipta við Jákup bara í einn dag. Hversu mikið væri ekki vælt þá?! :) Karlmenn ættu bara að prófa að vera óléttir í 8.-9.mánuði í 1-2 daga. Og samt gera konur þetta aftur og aftur....

 
At 12:55 PM, Anonymous Anonymous said...

Guð hvað ég er sammála þér,það á náttla að banna svona langar meðgöngur,30 vikur væri fínt:-).Litla snúllan er einmitt búin að skorða sig langt niður í grind hjá mér og ég finn sko fyrir öllu,strákarnir skorðuðu sig ekki fyrr en um 37 viku þannig að þetta er helst til og snemma núna,verkjalega séð.Ég krossa bara putta og vona að hún komi á 37-38 viku,það væri draumur í dós.

Gangi ykkur vel að flytja og farðu vel með þig.

knús Þóra Kolla

 
At 7:06 AM, Blogger Ásta said...

Úff, sammála. Skil ekki þennan síðasta mánuð, hvað þá þegar maður fer svo 2 vikur framyfir!! Kristina skorðaði sig aldrei, og litla snúllan er ekki búin að því, þannig að ég þekki það ekki. En nú er svefninn takmarkaður við 6-7 tíma á nóttinni vegna verkja í grindinni, þannig að ég sit hérna í tölvunni kl.6 að morgni! Væl væl!:D Ég væri líka til í að eiga við 38 vikur, það væri fullkomið.

 
At 4:35 PM, Anonymous Anonymous said...

myndarlegar bumbur saman :)

Gaman að sjá nýtt blogg..

Helga Dröfn

 
At 11:50 AM, Anonymous Anonymous said...

Sætar!

Valdis

 
At 10:00 PM, Blogger Unknown said...

Flott bumba hjá þér :)

 

Post a Comment

<< Home