31.ágúst
Þá er bara mánuður eftir af meðgöngunni í mesta lagi:) Ég verð sett af stað í kringum 1.október í versta falli. Vonandi verður ekki af því. Mér finnst bumban alveg vera búin að ná hámarki, amk hvað varðar pláss fyrir magasekk og önnur líffæri mín. Samdrættirnir eru líka orðnir ansi sterkir og litla snúllan greinilega orðin stór og sterk. Samt sem áður finnst okkur erfitt að átta okkur á því að það sé að koma lítill einstaklingur, enda mikið um að vera á heimilinu við að undirbúa flutninga. Við flytjum á laugardaginn, og Jákup er að vinna á Jótlandi alla vikuna, þannig að við erum búin að pakka ansi miklu. Það er hálftómlegt á heimilinu og hálftilgangslaust að taka til og þrífa. Það verður ótrúlega gott að ljúka þessu af og geta komið vöggunni og skiptiborðinu á sinn stað. Þá róast mömmuhjartað :)
Ég er að lesa alveg ótrúlega bók, sem hún Fjóla mælti með. Hún heitir "Handle with care" eftir Jodi Picoult, og ég er alveg föst yfir henni þessa dagana. Líka þegar ég á að vera að pakka ;) Mæli með henni.

3 Comments:
Væri gott að geta rétt fram hjálparhönd :/ ef það væri ekki HAF á milli okkar!!
Gangi ykkur vel á lokasprettinum, að pakka eða lesa hihihi...
Helga Dröfn
Eg man okkur fannst lika rosalega skritid ad thad væri ad koma nyr einstaklingur inn a heimilid adur en Charlotta fæddist og einhvern veginn föttuðum við það ekki fyrr en hún var fædd! En þá var líka bara eins og hún hefði alltaf verið til;) Skrítinn heimur! Njóttu þess að lesa á milli þess sem þú pakkar, þú verður nú líka að slaka á, á milli! Knús
Hehe var að enda við að skrifa á síðuna ykkar! ;)
Post a Comment
<< Home