Sund í DK
Ég hef, þessi 8 ár sem ég hef búið í Danmörku, aldrei einu sinni íhugað það að fara í sundhöllina í bænum. Þegar maður kemur frá svona lúxuslaugum eins og á Íslandi, er samanburðurinn hreinlega sorglegur. En ég er byrjuð í sjúkraþjálfun vegna bakverkja og sjúkraþjálfarinn er búin að snúa upp á handlegginn á mér og neyða mig til þess að fara að hreyfa mig og hugsa betur um sjálfa mig. Þannig að ég er búin að fara tvisvar að synda! Í fyrra skiptið fórum við fjölskyldan í sundlaug í Nyborg með barnalaug þar sem feðginin kepptust um að fara í rennibrautina á meðan ég synti. En í dag fór ég beint úr vinnunni, niður í bæ, eingöngu til þess að synda. Og viti menn, það var bara ferlega nice! :) Ég synti reyndar bara 4 ferðir skriðsund (þvílíkt erfiði!) og svo 20 á bringunni, en þetta var mjög gott. Notalegt að finna ekki fyrir þyngslunum sem annars eru að bætast á mig ;) Nú verður unnið að því að bæta skriðsundstæknina.
Á morgun á ég frí í fyrsta sinn í 10 daga. Og við familían ætlum að skreppa í Legoland, örugglega ásamt helmingnum af dönum. Það er nefnilega frídagur og veðrið alveg ágætt. En einmitt vegna allra þessara vinnudaga, helmingurinn af þeim til kl.18, hef ég nánast ekkert annað gert en að koma heim, elda mat og fara að sofa á sama tíma og Kristina. Hér bíður mín fjall af þvotti, myndir sem á að setja á barnaland, kort sem þarf að skrifa, og ráðningarsamningar sem þarf að senda undirskrifaða til Aabenraa. Jibbíkóla! Svo er vika eftir af vinnu, og þá er komið að Íslandsferð! :) Við erum spennt! Ég er búin að segja Kristinu að við séum að fara til Íslands, þannig að í hvert sinn sem ég segi: "Veistu hvað við ætlum að gera á morgun?" (t.d. Legoland á morgun), þá segir Kristina "Fara í sund með Tedda"! Þá vitum við hvað er efst á lista við komuna til landsins!
Við erum að slást við liðið í Aabenraa um að fá íbúð í ágúst. Eða kannski ekki svo gróft, við erum búin að athuga stöðuna, og eins og er geta þau fyrst boðið okkur íbúð um miðjan sept. Þá verður Jákup að keyra fyrstu tvær vikurnar héðan, og ég kasólétt að vera heima með Kristinu. Ekki nenni ég að hjóla með hana til dagmömmu komin 39-40 vikur á leið. Mér finnst það nógu strembið núna (það er brekka alla leiðina þangað sko...) Og flytja svo alveg í kringum fæðinguna... ætli ég fari ekki bara af stað í flutningabílnum! hehe

14 Comments:
Dugnadur i ther! Vona eg komist einhvern timann med ther ad synda;). Heyrdu thid erud bara alveg ad fara til Islands! Vonum samt vid naum ad sja ykkur adeins adur. Kram Sigga
Hljótið að fá íbúð fyrr, trúi ekki öðru en þetta reddist, krossa putta fyrir ykkur. Er einmitt oft búin að vera að velta fyrir mér að prófa sundhöllina í bænum, læt kannski verða að því bráðum fyrst þetta lítur ágætlega út ;) Góða skemmtun á morgun. Knús Hjördís Elva
Það verða nóg tækifærin, ég á að synda tvisvar í viku ;) Við mæðgur erum annars einar að dinglast á sunnudaginn og engin plön. Hvað er programmið hjá ykkur?
Takk Hjördís! Þetta hlýtur að gera það. Sundlaugin var barasta fín, ef maður er kominn til að synda. Hún var meira að segja hlýrri en ég hélt. Og það er gufubað inni í búningsklefa, mmmm ;)
Hvernig var i legolandi? Sunnudagurinn er oljos, tengdo eru i heimsokn en fara heim a sun, verd i bandi. Ef thau fara snemma langar okkur sko alveg ad leika;). Knus Sigga
Ja, og ef thid faid ekki ibud fyrr en i september tha verd eg bara einkadriver og skutla Kristinu til og fra dagmømmu, thad er ekki hægt ad lata thig hjola thetta alveg a steypirnum, Asta min! Vid reddum thessu ef allt fer a versta veg! Trui annars ekki ødru en thid faid ibud i agust. Heyrumst Sigga
Takk Sigga! Ég ætla að hringja í dag og láta öllum illum látum ;) Annars verðum við bara að sjá til hvernig þetta fer. Jákup var jafnvel að hugsa hvort hann gæti fengið vagtherbergi þarna fyrir sunnan þangað til íbúðamál leysast, þá get ég verið á bílnum á virkum dögum og verið grasekkja.
En endilega hóið í okkur á sunnudag ef thid eruð laus!
jahh ef þú ferð af stað í flutningabílnum þá er ágætt að vera læknir og eiga læknamann til að aðstoða hehehehe..
Helga Dröfn
Æi, hvað er sætt að vilja helst af öllu fara í sund með Tedda :)
En ég tek undir með hinum, íbúðamálin hljóta að reddast einhvern veginn! Og haltu endilega áfram í sundinu. Hef alltaf verið sannfærð um að þetta sé ein besta líkamsrækt sem völ er á.
Knús!
HD: Hehe já það er alltaf ljós punktur í stöðunni! ;) Ég var nú líka svo lengi að þessu síðast, að ég hlýt að ná á sjúkrahús hvar sem ég verð!
Sigrún: Nemlig, vandamálið er að þessar blessuðu sundlaugar eru með opnunartíma eins og gatasigti! Helv vesen alltaf á Dönum. Núna (og ekki bara núna) sakna ég íslensku lauganna sem eru opnar alla daga ársins frá 06-23 (eða nánast!).
Ja, eigum vid ad ræda thessa opnunartima eitthvad?! Var ad athuga, thad er bara uni-sundlaugin sem er opin a kvøldin, 1x i viku! A fimmtudøgum. Hugsa vid getum gleymt thessu fina "kvøldsundplani" okkar... Knus Sigga
Jebb, ég ætladi einmitt ad skrifa til thin med thessar upplýsingar! Hehe!Glatad fyrirkomulag. Og svona er opnunartíminn næstu 3 vikurnar, svo verdur hann enn verri!
Hehe, þið Sigga verðið bara að skreppa í sund í Svömmestadion Danmark í Esbjerg, þar sem ég var að vinna fyrir 8 árum. Þar er opið alla daga frá 6-21 og frá 9-19 um helgar :-)
Og þetta er ekki bara sundlaug heldur heilt Badeland, með öldulaug, rennibraut, heitri laug og heitum pottum.
Kveðja frá Íslandi
Alltaf jafn gaman að lesa bloggið hjá þér. Vonandi hafið þið það huggulegt á Íslandi. Og enn og aftur til hamningju með væntanlega stelpu í heiminn. Sjáumst, knús Helga.
Takk fyrir það Helga!
Post a Comment
<< Home