Sunday, May 03, 2009

Nýjustu fréttir eru þær að það sást enginn tippalingur í 20 vikna sónar og við búum okkur því undir að fá aðra stelpu í húsið! Mjög hagstætt og fínt ;) Jákup er ánægður með allar stelpurnar sínar og segist alveg vilja 4 stelpur. Það var nú eins gott! Nú verður spennandi að sjá hvort þær eru úr sama móti, eða hvort það komi allt önnur blanda.
Við fjölskyldan gerðum okkur dagamun á föstudaginn, 1.maí, og keyrðum niður í bæ í farfars bíl til þess að fara út að borða. Á ljósunum hjá spítalanum sáum við ungan mann liggja á bekk við strætóskýlið og sá virtist ekki vera við mikla meðvitund. Við erum neydd til að bregðast við öllu svona í okkar profession, þannig að Jákup stoppaði bílinn og ég snaraði mér út að athuga stöðuna. Þegar ég var búin að ganga úr skugga um að hann væri bara fullur og að hann kæmist heim, hoppaði ég inn í bíl aftur (ok ok, ég skrönglaðist inn í bíl aftur, er að verða svolítið þung á mér!). Þá sagði Kristina hátt og skýrt: "Mamma vinna!" Hehehe. Jákup hafði þetta ekki fyrir henni. Ætli hún átti sig á því hvað við gerum? Hún er búin að heimsækja okkur bæði í vinnuna og sjá okkur í læknasloppnum, en úr því og að reikna þetta út, mér finnst það spes ;)
Við fáum nýja fína bílinn okkar á þriðjudag og hlakkar mikið til! Scoda octavia skutbíll 2006 árgerð. Og það fyrsta sem ég geri á bílnum er að sækja mömmu og Jónu frænku á lestarstöðina. Þær eru nefnilega svo sætar að koma og passa Kristinu á meðan ég og Jákup skreppum í helgarferð til Barcelona! Ég hef aldrei verið lengur frá henni en 1 og hálfan sólarhring, og er spennt að sjá hvor okkar eigi eftir að sakna hinnar meira. Kristina er ægileg mömmurófa þessa dagana, og vill helst skríða inn í mig stundum. Í morgun vöknuðum við öll saman í rólegheitunum og vorum að kúra saman eins og við gerum ef tími er til þess. Svo lagðist ég hjá Jákupi, og hann sagði "babba á mömmu". Kristina var ekki lengi að henda sér á mig, ýta pabba sínum í burtu og taka það fram að Kristina eigi mömmu!! Svo segir hún við mig mörgum sinnum á dag: "Mig og dig". Algjör rófa.
Ég er hætt að vinna næturvaktir, og er voða fegin. Það er miklu erfiðara núna að vinna stanslaust í 17 tíma, og að fá engan svefn. Ég var farin að finna verulega fyrir grindinni og miklum þyngslum í kviðnum eftir svona marga tíma. Ég er mun skárri þegar ég fæ nætursvefninn minn! En mér finnst líka hálfboring að vinna alla daga vikunnar, vaktavinna hentar skapi mínu almennt betur.
En þetta varð nú algjör langloka. Ég ætla að koma rófunni í rúmið. Hún er að horfa á Mikka mús.

6 Comments:

At 1:52 AM, Blogger herborg said...

til lukku með væntanlega skvísu:)

 
At 5:22 PM, Anonymous Sigga said...

Til hamingju med kaggann! Er thetta ekki allt annad lif? Og til hamingju med ad vera hætt næturvaktarbrøltinu! Heyrumst

 
At 6:05 PM, Blogger Ásta said...

Við erum ekki búin að ná í bílinn :) Þvílíkt vesen með bankann...er búin að sitja yfir tölvunni í allan dag að bíða eftir pappírunum frá bankanum, til þess að skrifa undir og faxa beint aftur, svo við getum sótt bílinn á morgun. Danir. Það er bara búið að taka 1 og hálfan mánuð að skipta um banka og það er ekki enn búið að senda okkur kort.

 
At 10:14 AM, Anonymous Sigga said...

Danir eru svooo hressir i svona malum... eda thannig! Vona thid getid sott bilinn sem fyrst! Hvenær faridi aftur ut, er thad a morgun eda hinn? Goda ferd ef eg heyri ekki i ther.

 
At 11:06 AM, Anonymous Anonymous said...

Innilega til hamingju með "ekki tippaling" =)

Hafið það gott í Barcelona hjónin... hálf öfunda ykkur af sumarblíðu hvort heldur sem er í DK eða Barce..

Helga Dröfn

 
At 10:54 PM, Anonymous Anonymous said...

Gaman að fá fréttir, og góða skemmtun í Barcelona, alveg hægt að missa sig í barnafötunum þar, þá er nú gott að það er önnur stelpa á leiðinni ;)
Og til hamingju með bóndann!
Valdís

 

Post a Comment

<< Home