Það er alveg að koma helgi -aftur. Mér finnst þessi vika hafa liðið svakalega hratt! Enda var ég á næturvakt á mánudag, svaf þriðjudag og miðvikudag var ég heima með Kristinu lasna. Þannig að ég er bara búin að vinna venjulegan vinnudag í dag :) Kristina er þó enn lasin og amma hennar passaði í dag, og sennilega á morgun líka. Á morgun erum við jákup bæði að vinna til kl.18 og ætlum að fara út að borða saman og í bíó eftir það, ef við getum látið okkur hafa það, þegar snúllan er lasin... Hún er reyndar að hressast. Ég er spennt að sjá hvort ég sleppi við Novo virusinn sem gengur á deildinni minni eins og er! Ég var nýbúin að fara inn að tala við tvo sjúklinga þegar mér var tilkynnt að stofunni yrði lokað vegna víruss! :S Spennt er kannski ekki orðið...!
Annars var ég að reyna að sjá fyrir mér hvernig lífið verður með tvö börn eftir rúmlega ár, og bæði í fullri vinnu. Það er nú einu sinni þannig að maður á bara rétt á "fyrsta veikindadegi barns" í hverjum veikindum, og svo verður maður að finna sér pössun. En hvað gerir maður þegar barnið leggst í viku veikindi, með hlaupabólu eða annað? Ekki getur maður endalaust fengið vini og kunningja til að passa? Við yrðum þá að nýta okkur einn dag hvort (þótt það sé strangt til tekið ekki leyfilegt) og svo ljúga því að við séum sjálf veik restina af vikunni! Þetta verður spennandi. 2 börn = 2svar sinnum fleiri veikindadagar.
Ég er gengin 15 vikur í dag og er strax farin að finna fyrir grindinni. Jibbíkóla! Ég man ekki hvenær það kom síðast, en örugglega ekki svona snemma. Þó kom það of snemma síðast. En þá var ég samt ekki stöðugt að halda á 14 kg barni ;) Þetta verður spennandi. En ég á bara eftir að vinna næturvaktir í 2 mánuði í viðbót, eftir það vinn ég bara dagvinnu.

8 Comments:
Úff, þetta verður erfitt...en vonandi þess virði. Þeir hljóta að taka aðeins meira tillit þegar þið eruð komin með tvö! :P
Ég hlakka svo til að sjá ykkur!
Kveðja,
Dóra
P.s. knúsaðu dúllustelpuna frá mér. Ég sakna hennar svo mikið!
Hehe nei, þeim er alveg sama hvort maður sé með eitt eða þrettán! :) Þetta er bara svona á vinnumarkaðinum, það var sko gott að vera í skóla!
Ég skal knúsa hana alveg í kaf fyrir þig. Hlakka rosalega til að sjá ykkur öll!
Farðu vel með þig mín kæra! Hvenær kemurðu aftur heim??
Við Kristina komum um kvöldið þann 12.apríl og erum til 18. Því miður er þetta venjuleg vinnuvika hjá öllum:( Hvernig stendur á hjá þér?
Er að fara til Liverpool en kem heim þann 13. og svo tekur vinnan einmitt við :( En ég reyni pottþétt að koma og kíkja á ykkur - ekki spurning.
Ég er einmitt alltaf að röfla yfir þessu, ég á sama fjölda af veikindadögum v/veikinda barna með mín 4 eins og sá sem á eitt!
Enda er ég "bara" í 70% vinnu!
Hlakka rosalega til að sjá ykkur!
Kveðja, Kaja og co.
Já það er greinilegt að það er gert ráð fyrir ömmu og afa í næsta húsi!
Innilega til hamingju með strákana á sunnudaginn, leiðinlegt að við skyldum alltaf missa af svona viðburðum!
Við stefnum á að kíkja á ykkur í þessari viku ef þið eruð ekki vant við látin!
Oh þetta er svo gaman,það er algjör óþarfi að hafa áhyggjur fyrirfram,þetta reddast alltaf(er það ekki)ég er búin að tala við Evu og þú bara segir til hvenær þú getur komið og hitt okkur.
Kveðja Þóra Kolla
Post a Comment
<< Home